Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar

87. fundur 14. apríl 2021 kl. 09:00 - 10:33 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson formaður
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varaform.
  • Ragnheiður Halldórsdóttir ritari
  • Inga Katrín D. Magnúsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson Verkefnastjóri
Dagskrá

1.Nýr tímabundinn samstarfssamningur um afnot og varðveislu Víðimýrarkirkju

Málsnúmer 2104050Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Einar Erni Einarssyni dagsett 8. apríl 2021 varðandi nýjan tímabundinn samstarfssamning um afnot og varðveislu Víðimýrarkirkju við Þjóðminjasafn Íslands.
Atvinnu,- menningar og kynningarnefnd þakkar erindið og ábendingar sem í því koma fram varðandi umhirðu og varðveislu Víðimýrarkirkju. Það er hinsvegar ekki stjórnsýslulegt hlutverk nefndarinnar að hlutast til um starfsmannamál og er vísað til safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga að svara erindinu og leiða þau til lykta, eftir atvikum í samstarfi við aðra yfirmenn Sveitarfélagsins. Nefndin leggur áherslu á að leitað verði hagkvæmustu leiða til reksturs Byggðasafnsins en jafnframt skal gæta fyllsta öryggis og að varðveisla minja sé tryggð.

2.Sæluvika Skagfirðinga 2021

Málsnúmer 2104068Vakta málsnúmer

Rætt um útfærslu á Sæluviku 2021 í ljósi gildandi samkomutakmarkana. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að halda Sæluviku 2021 dagana 25. apríl til 1. maí nk. Viðburðir verða ýmist haldnir með rafrænum hætti eða með þeim hætti sem rúmast innan gildandi samkomutakmarkana. Nefndin felur starfsmönnum sínum að setja saman dagskrá og auglýsa eftir viðburðum. Dagskrá Sæluviku má nálgast á vefsvæði sveitarfélagsins (www.skagafjordur.is) þegar nær dregur. Íbúar eru hvattir til að gera sér dagamun í Sæluviku.

3.Tímabundinn styrkur til stuðnings menningarstarfsemi í Sveitarfélaginu Skagafirði

Málsnúmer 2102118Vakta málsnúmer

Teknar fyrir umsóknir um tímabundinn styrk til stuðnings menningarstarfsemi í Sveitarfélaginu Skagafirði. Samþykktar voru 9 umsóknir sem uppfylltu skilyrði úthlutunarreglna. Til úthlutunar voru 2.000.000 kr. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að veita eftirtöldum aðilum styrk:

Bjórsetur Íslands 160.000 kr
Sviðsljós ehf 160.000 kr
Studió Benmen ehf 160.000 kr
Sigfús Benediktsson 160.000 kr
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir 160.000 kr
Leikfélag Sauðárkróks 300.000 kr
Karlakórinn Heimir 300.000 kr
Króksbíó 300.000 kr
Gullgengi ehf 300.000 kr

Fundi slitið - kl. 10:33.