Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar

76. fundur 06. maí 2020 kl. 09:00 - 11:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson formaður
  • Sigríður Magnúsdóttir varaform.
  • Ragnheiður Halldórsdóttir ritari
  • Inga Katrín D. Magnúsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Axel Kárason
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson Verkefnastjóri
Dagskrá
Samþykkt í upphafi fundar að taka mál 2005044 á dagskrá með afbrigðum.

1.Ferðamenn í Skagafirði - markaðsátak sumarið 2020

Málsnúmer 2005010Vakta málsnúmer

Tekið til kynningar markaðsátak sem fyrirhugað er fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði. Undir þessum lið sátu stjórn Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd tekur vel í verkefnið og leggur áherslu á mikilvægi verkefnisins til að fá ferðamenn í Skagafjörð. Nefndin leggur einnig ríka áherslu á samstarf og samvinnu allra hluteigandi aðila. Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði lýsti yfir vilja til áframhaldandi góðs samstarfs og þátttöku í verkefninu.

2.Staða ferðaþjónustunnar á Norðurlandi

Málsnúmer 2003229Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar minnisblöð frá Markaðsstofu Norðurlands og Markaðsstofu landshlutanna.

3.Innanlands-hvatningarátak og samfélagsmiðlar

Málsnúmer 2004146Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Markaðsstofu Norðurlands um sameiginlegt markaðsátak Ferðamálastofu og Markaðsstofa landshlutanna sumarið 2020.

4.Samningur um rekstur Árgarðs og tjaldsvæðisins á Steinsstöðum

Málsnúmer 2005009Vakta málsnúmer

Lagður fram rekstrarsamningur um rekstur félagsheimilisins Árgarðs og tjaldsvæðisins á Steinstöðum milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Friðriks Rúnars Friðrikssonar.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagðan samning sem er til fimm ára.

5.Rekstrarsamningur 2020 - Félagsheimilið Ketilás

Málsnúmer 1912072Vakta málsnúmer

Lagður fram rekstrarsamningur um félagsheimilið Ketilás milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Ferðaþjónustunnar á Brúnastöðum.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagðan samning sem gildir til 31. desember 2020. Nefndin stefnir á að auglýsa rekstur félagsheimilisins til lengri tíma á haustmánuðum.

6.Matarhátíð í Skagafirði - verkefni

Málsnúmer 2002237Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Kolfinnu Kristínardóttur dagsett 30.03.2020 vegna styrkumsóknar fyrir matarhátíð í Skagafirði.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd tekur vel í verkefnið og samþykkir að veita styrk að fjárhæð 100.000 kr ef að hátíðinni verður vegna óvissuástands í þjóðfélaginu.

7.Tímabundin breyting á opnunartíma og gjaldskrá Byggðasafns Skagafjarðar

Málsnúmer 2004263Vakta málsnúmer

Tekin fyrir beiðni frá Berglindi Þorsteinsdóttur safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga um tímabundna breytingu á opnunartíma Byggðasafnsins í Glaumbæ og Víðimýrarkirkju.
Safnstjóri leggur til eftirfarandi breytingar:
"Sumaropnunartími safnsins hefur síðustu ár verið frá kl. 9:00-18:00, alls níu klukkustundir. Lagt er til að opnunartíminn verði styttur um eina klukkustund og verði því átta klukkustundir. Einnig verður safnið ekki opið um helgar fyrr en eftir 20. maí."
Inga Katrín vék af fundi undir þessum lið.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirlagðar breytingar.

8.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir 2021

Málsnúmer 2005044Vakta málsnúmer

Tekin fyrir tillaga frá Berglindi Þorsteinsdóttur safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga þar sem hún leggur til að gjaldskrá safnsins haldist óbreytt fyrir árið 2021.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs.

Fundi slitið - kl. 11:15.