Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

95. fundur 09. október 2026 kl. 15:00 - 15:30 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Háeyri 6 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2610076Vakta málsnúmer

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. FISK-Seafood ehf. um leyfi til að byggja geymsluhúsnæði á lóðinni númer 6 við Háeyri á Sauðárkróki. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 49351003, númer A-100 til og með A-103, dagsettir 07.10.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:30.