Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Dagskrá
1.Steinn L145959 (Urð L241186) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2505248Vakta málsnúmer
Magnús Freyr Gíslason arkitekt, leggur fram f.h. Sigfríðar Jódísar Halldórsdóttur og Steingríms R. Friðrikssonar breytta aðaluppdrætti af einbýlishúsi sem verið er að byggja á lóðinni Urð L241186, áður Steinn L145959. Breytingar varða byggingu saunahús. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Gagn af Magnúsi Frey Gíslasyni. Uppdrættir í verki 73530002AM / G2501, númer B100, B101 og B102, dagsettir 12.06.2025, samþ. 26.06.2025. Uppdráttum breytt 15.02.2026. Byggingaráform samþykkt, byggingarleyfi veitt.
2.Dalatún 9 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi.
Málsnúmer 2605177Vakta málsnúmer
Yngvi Jósef Yngvason eigandi einbýlishúss sem stendur á lóðinni númer 9 við Dalatún á Sauðárkróki leggur fram gögn er varðar tilkynnta framkvæmd, breytingar á útliti húss, glugga og hurð við aðalinngang. Framlögð gögn gerð hjá Áræðni ehf. af Ingvari Gýgjari Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdráttur númer A-101, dagsettur 01.05.2026. Tilkynning og gögn eru í samræmi við gr. 2.3.5 og 2.3.6. í byggingarreglugerð 112/2012 um tilkynntar framkvæmdir.
Fundi slitið - kl. 09:45.