Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

83. fundur 14. apríl 2026 kl. 09:30 - 10:00 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Hesteyri 2 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2604033Vakta málsnúmer

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. Kaupfélags Skagfirðinga um leyfi til að byggja við Vélaverkstæði KS sem stendur á lóðinni númer 2 við Hesteyri á Sauðárkróki. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Þórði Karli Gunnarssyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 30340103, númer A-100 til og með A-105, dagsettir 07.04.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:00.