Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

82. fundur 01. apríl 2026 kl. 13:00 - 13:45 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Hildur Hartmannsdóttir starfsmaður byggingarfulltrúa
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Borgarflöt 9 (01-0112) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2602058Vakta málsnúmer

Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Sólbergs Loga Sigurbergssonar um leyfi til að setja upp milliloft í fjöleignarhúsi, geymsluhúsnæði með fasteignanúmerið F2538820, eining 01-0112 sem stendur á lóðinni númer 9 við Borgarflöt á Sauðárkróki. Einnig sótt um leyfi til að breyta útliti hússins, setja glugga á norðurstafn og vesturhlið. Framlagður aðaluppdráttur gerður af umsækjanda. Uppdráttur í verki HA26164, númer A-101, dagsettur 02.02.2026. Fyrir liggur samþykki allra eigenda séreigna í húsinu. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

2.Borgarflöt 9 (01-0108) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2603186Vakta málsnúmer

Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Kristjáns Óla Jónssonar um leyfi til að setja upp milliloft í fjöleignarhúsi, geymsluhúsnæði með fasteignanúmerið F2538816, eining 01-0108 sem stendur á lóðinni númer 9 við Borgarflöt á Sauðárkróki. Einnig sótt um leyfi til að breyta útliti hússins, setja glugga á vesturhlið. Framlagður aðaluppdráttur gerður af umsækjanda. Uppdráttur í verki HA26160, númer A-101, dagsettur 02.02.2026. Fyrir liggur samþykki allra eigenda séreigna í húsinu. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

3.Borgarflöt 9 (01-0106) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2603185Vakta málsnúmer

Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Jóhanns Ingólfssonar um leyfi til að setja upp milliloft í fjöleignarhúsi, geymsluhúsnæði með fasteignanúmerið F2538814, eining 01-0106 sem stendur á lóðinni númer 9 við Borgarflöt á Sauðárkróki. Einnig sótt um leyfi til að breyta útliti hússins, setja glugga á suðurstafn og austurhlið. Framlagður aðaluppdráttur gerður af umsækjanda. Uppdráttur í verki HA26161, númer A-101, dagsettur 02.02.2026. Fyrir liggur samþykki allra eigenda séreigna í húsinu. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

Fundi slitið - kl. 13:45.