Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

81. fundur 20. mars 2026 kl. 10:00 - 10:30 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Borgarteigur 6 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2603156Vakta málsnúmer

Ingvar Gýgjar Sigurðarson tæknifræðingur sækir f.h. Norðar ehf. um leyfi til að byggja geymsluhúsnæði á lóðinni númer 6 við Borgarteig á Sauðárkróki. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki 3401, númer A-100, A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir 26.02.2026. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

2.Sólheimagerði F2142075 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2603195Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 19. mars 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-020215. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Eyþórs Einarssonar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - H frístundahús í gestahúsi sem stendur á jörðinni Sólheimagerði, L146337, fasteignanúmer F2142075, mhl 14 á jörðinni. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Fundi slitið - kl. 10:30.