Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Dagskrá
1.Laugarbakkar L146190 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2601235Vakta málsnúmer
Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Guðmundar B. Ólafssonar um leyfi til að rífa eftirfarandi mannvirki á jörðinni Laugarbakkar, L146190: Fjárhús mhl. 04, byggð 1964, hlöðu mhl. 06, byggð 1954, votheysgryfju mhl. 07, byggð 1954 og geymslu mhl. 08, byggð 1954. Einnig sótt um leyfi til að byggja bílskúr með tengibyggingu við núverandi íbúðarhús þar sem áðurnefnd mannvirki standa. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af umsækjanda. Uppdrættir í verki HA25155, númer A-101, A-102, A-103 og A-104 og A-105, dagsettir 14.01.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.
Fundi slitið - kl. 10:30.