Menningarhús í Skagafirði – Jarðvinna 2026
Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið: Menningarhús í Skagafirði – Jarðvinna 2026.
Verkið snýr að jarðvinnu fyrir nýbyggingu sunnan við núverandi Safnahús við Faxatorg á Sauðárkróki. Framkvæmdir fela m.a. í sér uppgröft á óburðarhæfum jarðvegi sem verður fjarlægður og hann fluttur á viðurkenndan losunarstað. Að loknum uppgrefti skal komið fyrir burðarhæfri fyllingu, til undirbúnings frekari byggingarframkvæmdum. Auk þess nær verkið til jarðvegsskipta vegna framkvæmda á lóð menningarhússins. Hluti jarðvatnslagna vegna hússins er innifalinn í verkinu, sem og gerð heimæða fyrir fráveitu inn á lóð hússins.
Sérstakar kröfur eru gerðar um hæfni og reynslu bjóðenda.
Hönnuðir verksins eru:
- Aðalhönnun: Arkís arkitektar ehf.
- Verkfræðihönnun: Verkís ehf.
- Lóðarhönnun: Landhönnun slf.
Helstu magntölur í verkinu:
- Gröftur á lausum jarðvegi: u.þ.b. 7.300 m³
- Fyllingar: u.þ.b. 7.800 m³
- Fráveitulagnir: 280 m
Tilboðum skal skila í lokuðu umslagi til Stoðar verkfræðistofu ehf, Aðalgötu 21, 550 Sauðárkróki. Tilboð verða opnuð þar föstudaginn 22. maí 2026, kl. 13:00.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í lok maí 2026. Verkinu í heild skal að fullu lokið eigi síðar en 31. júlí 2026.
Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 5. maí 2026. Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið stod@stodehf.is.