Hreinsun rotþróa á Norðurlandi vestra
13.03.2026
Consensa fyrirr hönd sveitarfélaganna Skagafjörður, Húnaþing og Húnabyggð óskar eftir tilboðum í hreinsun rotþróa samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Um er að ræða hreinsun á rotþróum sem staðsettar eru við lögbýli, íbúðarhús, frístundarhús og stofnanir innan sveitarfélagsmarka framangreindra sveitarfélaga ásamt meðhöndlun seyru.
Hægt er að sækja öll útboðsgögn án endurgjalds á www.tendsign.is
Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti í útboðkerfinu Tendsign eigi síðar en kl. 12:00 þann 13. apríl 2026.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is/utbod