Víðigrund, Sauðárkróki - Gatnagerð 2026
Skagafjörður og Skagafjarðarveitur óska eftir tilboðum í verkið Víðigrund, Sauðárkróki – Gatnagerð 2026.
Verkið felst m.a. í endurgerð fráveitulagna, götulýsingar, vatnsveitu og hitaveitu í götunni Víðigrund á Sauðárkróki, auk jarðvegsskipta í götunni, með malbikun akbrautar og gangstétta og gerð kantsteina.
Helstu magntölur:
- Skurðgröftur, fráveita: 550 m
- Fráveitulagnir, plast: 850 m
- Skurðgröftur, vatns- og hitaveita: 380 m
- Vatnsveitulagnir, plast: 380 m
- Hitaveitulagnir, stál og plast: 330 m
- Jarðvegsskipti: 500 m3
- Jöfnunarlag: 385 m3
- Malbik á akbrautir: 120 m2
- Malbik á gangstéttar: 915 m2
- Kantsteinar: 475 m
Opnunardagur tilboða er 30. janúar 2026.
Verkinu í heild skal lokið 31. október 2026.
Útboðsgögn verða afhent gjaldfrjálst á rafrænu formi frá og með 12. janúar 2026. Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti á netfangið stod@stodehf.is.
Uppfært 10. febrúar 2026
Föstudaginn 30. janúar 2026 voru opnuð tilboð í verkið ,,Víðigrund Sauðárkróki – gatnagerð 2026“. Um var að ræða opið útboð. Tvö tilboð bárust, hafa þau nú verið yfirfarin. Engar útreikningsskekkjur fundust. Fyrir opnun tilboða gerði forsvarsmaður Vinnuvéla Símonar ehf, Rúnar Símonarson, athugasemd um að engar breytingar hefðu átt sér stað á útboðsgögnum frá fyrra útboði.
Niðurstaðan er eftirfarandi:
|
Nr. |
Nöfn bjóðenda |
Upphæð |
Hlutf. af áætlun |
|
1 |
Vinnuvélar Símonar ehf. |
Kr. 153.813.481,- |
95,5% |
|
2 |
Steypustöð Skagafjarðar ehf. |
Kr. 152.658.040,- |
94,8% |
|
- |
Kostnaðaráætlun, Stoð ehf. |
kr. 161.110.910,- |
100%
|