Fara í efni

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar

322. fundur 15. desember 2014 kl. 16:15 - 18:15 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Sigríður Svavarsdóttir forseti
  • Sigríður Magnúsdóttir 1. varaforseti
  • Stefán Vagn Stefánsson aðalm.
  • Bjarki Tryggvason aðalm.
  • Viggó Jónsson aðalm.
  • Þórdís Friðbjörnsdóttir aðalm.
  • Gunnsteinn Björnsson aðalm.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir 2. varaforseti
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Helga Sigurrós Bergsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Helga Sigurrós Bergsdóttir stjórnsýsluritari
Dagskrá

1.Byggðarráð Skagafjarðar - 680

Málsnúmer 1411032FVakta málsnúmer

Fundargerð 680. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 322. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

1.1.Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra

Málsnúmer 1411232Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 680. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

1.2.Fjárhagsáætlun 2015

Málsnúmer 1408146Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 17. liðar á dagskrá, Fjárhagsáætlun 2015.
Samþykkt samhljóða.

1.3.Gjaldskrá - heimaþjónusta 2015

Málsnúmer 1411168Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 9. liðar á dagskrá, Gjaldskrá heimaþjónustu 2015.
Samþykkt samhljóða.

1.4.Brunavarnir Skagafjarðar - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411167Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 10. liðar á dagskrá, Brunavarnir Skagafjarðar - gjaldskrá 2015.
Samþykkt samhljóða.

1.5.Fráveita - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411177Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 11. liðar á dagskrá, Fráveita - gjaldskrá 2015.
Samþykkt samhljóða.

1.6.Gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga

Málsnúmer 1411187Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 12. liðar á dagskrá, Gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga.
Samþykkt samhljóða.

1.7.Sorphirða - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411178Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 13. liðar á dagskrá, Sorphirða - gjaldskrá 2015.
Samþykkt samhljóða.

1.8.Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald 2015

Málsnúmer 1411171Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 14. liðar á dagskrá, Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald 2015.
Samþykkt samhljóða.

1.9.Skagafjarðarveitur - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411182Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 15. liðar á dagskrá, Skagafjarðarveitur - gjaldskrá 2015.
Samþykkt samhljóða.

1.10.Afnot að aðstöðu í Kálfárdal í Gönguskörðum

Málsnúmer 1409184Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 680. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

1.11.Gilstún 6 - fnr. 221-9780

Málsnúmer 1411233Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 680. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

1.12.Lögfræðileg skoðun á lánasamningi við Lánasjóð sveitarfélaga ohf

Málsnúmer 1203010Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 680. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

1.13.Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014-2018

Málsnúmer 1411224Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 680. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

1.14.Tilkynning um kjörræðismann Rússlands á Íslandi

Málsnúmer 1411207Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 680. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

2.Byggðarráð Skagafjarðar - 681

Málsnúmer 1412002FVakta málsnúmer

Fundargerð 681. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 322. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

2.1.Tumabrekka 146597 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1411238Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 681. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

2.2.Afgreiðsla stjórnar SÍS á erindi Vinnumálastofnunar um viðtalsaðstöðu hjá sveitarfélögum

Málsnúmer 1412019Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 681. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

2.3.Lántaka 2014

Málsnúmer 1405114Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 16. liðar, Lántaka 2014.
Samþykkt samhljóða.

2.4.Ósk um viðræður vegna Leikborgar

Málsnúmer 1409040Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 681. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

2.5.Styrkbeiðni - Eldvarnaátakið 2014

Málsnúmer 1412024Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 681. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

2.6.Styrkumsókn - Snorraverkefni 2015

Málsnúmer 1411266Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 681. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

2.7.Beiðni um viðræður um kaup á landi

Málsnúmer 1411204Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 681. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

2.8.Fjárhagsáætlun 2015

Málsnúmer 1408146Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 17. liðar, Fjárhagsáætlun 2015.
Samþykkt samhljóða.

2.9.Þriggja ára áætlun 2016-2018

Málsnúmer 1408147Vakta málsnúmer

Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til 18. liðar, Þriggja ára áætlun 2016-2018.
Samþykkt samhljóða.

2.10.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - fundargerðir

Málsnúmer 1404065Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 681. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

2.11.Fundargerðir 2013 og 2014 Rætur bs.

Málsnúmer 1402355Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 681. fundar byggðaráðs staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

3.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 15

Málsnúmer 1412011FVakta málsnúmer

Fundargerð 15. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 323. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

3.1.Rekstur tjaldsvæðanna á Sauðárkróki, Hofsósi og í Varmahlíð 2014

Málsnúmer 1411189Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 15. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

3.2.Safnastefna Byggðasafns Skagfirðinga 2014-2018

Málsnúmer 1410107Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 15. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

3.3.Tillaga að breytingu á fyrirkomulagi reksturs upplýsingamiðstöðvar landshlutans í Varmahlíð

Málsnúmer 1412041Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 15. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

4.Skipulags- og byggingarnefnd - 265

Málsnúmer 1412004FVakta málsnúmer

Fundargerð 265. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 322. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Viggó Jónsson kynnti fundargerð. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Viggó Jónsson kvöddu sér hljóðs.

4.1.Starfshættir Skipulags- og byggingarnefndar

Málsnúmer 1412040Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 265. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með átta atkvæðum. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá.

5.Skipulags- og byggingarnefnd - 266

Málsnúmer 1412001FVakta málsnúmer

Fundargerð 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 322. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Viggó Jónsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

5.1.Eyrarvegur 21 - Umsókn um uppsetningu skilta.

Málsnúmer 1411242Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með átta atkvæðum. Sigríður Svavarsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu málsins.

5.2.Lækjarbakki 3 (146260) - Umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 1411241Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

5.3.Helluland 146382 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1411179Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

5.4.Sleitustaðavirkjun 146492 - Umsókn um staðfestingu lóðarmarka.

Málsnúmer 1412037Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

5.5.Smáragrund 1 146494 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1412038Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

5.6.Varmahlíð 146131 - Fyrirspurn vegna áforma um viðbyggingu við Hótel Varmahlíð

Málsnúmer 1412052Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

5.7.Byggingarfulltrúi - Gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa

Málsnúmer 1311013Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

5.8.Faxatorg 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1411240Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

5.9.Furuhlíð 8 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1411210Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með átta atkvæðum. Bjarki Tryggvason óskar bókað að hann taki ekki þátt í afgreiðslu málsins.

5.10.Reykjarhóll 146878 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1411239Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

5.11.Tumabrekka 146597 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 1411238Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 266. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

6.Veitunefnd - 11

Málsnúmer 1411028FVakta málsnúmer

Fundargerð 11. fundar veitunefndar lögð fram til afgreiðslu á 322. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.

6.1.Fjárhagsáætlun 2015 - Skagafjarðarveitur

Málsnúmer 1411181Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 11. fundar veitunefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

6.2.Skagafjarðarveitur - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411182Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 11. fundar veitunefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

6.3.Bakkaflöt - tenging við hitaveitu Skagafjarðarveitna

Málsnúmer 1411058Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 11. fundar veitunefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

6.4.Fyrirspurn um stöðu lögfræðiúttektar á jarðhita og kaldavatnsréttindum sveitarfélagsins.

Málsnúmer 1411228Vakta málsnúmer

Afgreiðsla 11. fundar veitunefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með níu atkvæðum.

7.Deplar (146791) - Aðalskipulagsbreyting

Málsnúmer 1409178Vakta málsnúmer

Vísað frá 264. fundi skipulags- og byggingarnefndar 19. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Auglýsing skipulagslýsingar vegna breytinga á Aðalskipulagi og vegna gerðar deiliskipulags hefur legið frammi. Engar ábendingar eða athugasemdir hafa borist en frestur til að skila inn ábendingum var auglýstur til 7. nóvember sl.
Lögð er fram til samþykktar breytingartillaga við Aðalskipulag Skagafjarðar 2009-2021 vegna Depla. Breytingartillagan sem dagsett er 15.11.2014 er unnin hjá Stoð ehf verkfræðistofu af Eyjólfi Þór Þórarinssyni.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að leggja til við Sveitarstjórn að auglýsa þessa breytingu á aðalskipulagi skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan fellur ekki undir lög nr. 106/2000 um umhverfismat áætlana, þar sem hún markar ekki stefnu um framkvæmdir sem háðar eru lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum."

Tillaga skipulags- og byggingarnefndar um að auglýsa breytingu á aðalskipulagi skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010., borin undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

8.Deplar 146791 - Deiliskipulag

Málsnúmer 1409071Vakta málsnúmer

Vísað frá 264. fundi skipulags- og byggingarnefnar 19. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Auglýsing skipulagslýsingar vegna breytinga á Aðalskipulagi og vegna gerðar deiliskipulags hefur legið frammi. Engar ábendingar eða athugasemdir hafa borist en frestur til að skila inn ábendingum var auglýstur til 7. nóvember sl.
Lögð er fram til samþykktar deiliskipulagstillaga vegna Depla. Greinargerð með skipulags- og byggingarskilmálum ásamt deiliskipulagstillögu. Deiliskipulagstillaga og greinargerð unnin hjá Landslag ehf landslagsarkitektum. Tillaga og greinargerð dagsett 03.11.2014.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Tillaga skipulags- og byggingarnefdar um að auglýsa deiliskipulagstillögu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 borin undir atkvæði sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

9.Gjaldskrá - heimaþjónusta 2015

Málsnúmer 1411168Vakta málsnúmer

Vísað frá 680. fundi byggðarráðs 27. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarsjórn.

"Lögð fram tillaga um eftirfarandi breytingu á gjaldskrá heimaþjónustu frá og með 1. janúar 2015.
Gjald fyrir unna vinnustund í heimaþjónustu verði miðað við launaflokk 128-1 skv. samningum Öldunnar - stéttarfélags frá 1. janúar 2015 með 8% persónuálagi, 2.430 kr. í stað 2.219 kr. áður. Gjaldskráin er tekjutengd og hækka viðmiðunarmörk tekna á móti.
Byggðarráð samþykkir tillöguna."

Gjaldskrá heimaþjónustu 2015 borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

10.Brunavarnir Skagafjarðar - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411167Vakta málsnúmer

Vísað frá 680. fundi byggðarráðs 27. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Erindinu vísað frá 106. fundi umhverfis- og samgöngunefndar til byggðarráðs.
Lögð fram tillaga um að gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar ásamt gjaldskrá fyrir slökkvitækjaþjónustu verði hækkuð um 3,5% frá og með 1. janúar 2015.
Byggðarráð samþykkir tillöguna."

Gjaldskrá Brunavarna Skagafjarðar 2015 borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

11.Fráveita - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411177Vakta málsnúmer

Vísað frá 680. fundi byggðarráðs 27. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Erindinu vísað frá 106. fundi umhverfis- og samgöngunefndar til byggðarráðs.
Lögð fram tillaga um að gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2015 verði óbreytt frá því sem nú er.
Byggðarráð samþykkir tillöguna."

Tillaga um að gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2015 verði óbreytt frá því sem nú er, borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

12.Gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga

Málsnúmer 1411187Vakta málsnúmer

Vísað frá 680. fundi byggðarráðs frá 27. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Erindinu vísað frá 14. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar til byggðarráðs.
Lögð fram tillaga um að halda gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga óbreyttri á árinu 2015.
Byggðarráð samþykkir tillöguna."

Tillaga um að halda gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga óbreyttri á árinu 2015, borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

13.Sorphirða - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411178Vakta málsnúmer

Vísað frá 680. fundi byggaðrráðs, 27. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Lögð fram tillaga um að gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna ársins 2015 verði óbreytt frá því sem nú er.
Byggðarráð samþykkir tillöguna."

Tillaga um að gjaldskrá sorphirðu fyrir árið 2015 verði óbreytt, borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

14.Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald 2015

Málsnúmer 1411171Vakta málsnúmer

Vísað frá 680. fundi byggðarráðs frá 27. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Erindinu vísað frá 106. fundi umhverfis- og samgöngunefndar til byggðarráðs.
Gerð er tillaga um eftirfarandi breytingar á gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði.
1. grein: Árlegt leyfisgjald fyrir hund verði hækkað í 10.000 kr. á ári.
2. grein: Árlegt leyfisgjald fyrir kött verði hækkað í 7.000 kr. á ári.
4. grein: Handsömunargjald verði 10.000 kr. í fyrsta skipti og hækkar eftir það í 20.000 kr. Óskráðir hundar og kettir skulu ekki afhentir eigendum sínum fyrr en að lokinni skráningu.
Bætt verði við nýrri 5. grein:
"Hafi leyfishafi lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi viðurkenndu af Sveitarfélaginu Skagafirði lækka gjöldin skv. 1. gr. gjaldskrár þessarar um 30%.
Skilgreining á því að leitarhundur sé undanþeginn leyfisgjaldi er að viðkomandi hundur hafi að minnsta kosti B viðurkenningu útgefna af viðurkenndum leiðbeinanda og skal ljósrit af viðurkenningu afhendast við umsókn um niðurfellingu leyfisgjalda. Heimilt er að ógilda niðurfellingu leyfisgjalda sé viðkomandi hundur ekki lengur á skrá sem leitarhundur samkvæmt skilgreiningu þessari."
5. grein verður 6. grein.
6. grein verður 7. grein.

Byggðarráð samþykkir framangreindar breytingar á gjaldskránni."

Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald 2015 borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

15.Skagafjarðarveitur - gjaldskrá 2015

Málsnúmer 1411182Vakta málsnúmer

Vísað frá 680. fundi byggðarráðs frá 27. nóvember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Erindinu vísað frá 11. fundi veitunefndar til byggðarráðs.
Lögð fram tillaga um að gjaldskrár Skagafjarðarveitna verði óbreyttar á árinu 2015.
Byggðarráð samþykkir tillöguna."

Tillaga um að gjaldskrá Skagafjarðarveitna fyrir árið 2015 verði óbreytt, borin undir atkvæði og samþykkt með níu atkvæðum á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014.

16.Lántaka 2014

Málsnúmer 1405114Vakta málsnúmer

Vísað frá 681. fundi byggðarráðs frá 4. desember 2014 til samþykktar í sveitarstjórn.

"Á fjárhagsáætlun 2014 er heimild til lántöku að upphæð 868 milljónir króna. Þegar hafa verið teknar að láni 500 milljónir króna.
Byggðarráð samþykkir að taka lán hjá Kaupfélagi Skagfirðinga samkvæmt fjármögnunarsamningi sem gerður var 22. apríl 2013, allt að 300 milljónir króna til fimm ára."

Lántaka hjá Kaupfélagi Skagfirðinga samkvæmt fjármögnunarsamningi sem gerður var 22. apríl 2013, um allt að 300 milljónir króna til fimm ára, borin undir atkvæði og samþykkt með átta atkvæðum. Grréta Sjöfn Guðmundsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá.

17.Fjárhagsáætlun 2015

Málsnúmer 1408146Vakta málsnúmer

Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri tók til máls og kynnti fjárhagsáætlun 2015.

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2015 er lögð fram til seinni umræðu. Fjárhagsáætlunin sýnir rekstraráætlun, sjóðsstreymi og áætlaðan efnahagsreikning fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess. Áætlun ársins gerir ráð fyrir að rekstrartekjur Sveitarfélagsins Skagafjarðar nemi 4.270 m.kr. hjá samstæðunni í heild, A- og B hluta, þar af eru rekstrartekjur A- hluta áætlaðar 3.638 m.kr. Rekstrargjöld án fjármagnsliða eru áætluð 3.934 m.kr., þ.a. A hluti 3.500 m.kr. Rekstrarhagnaður A og B hluta án afskrifta og fjármagnsliða er 505 m.kr, afskriftir nema 169 m.kr. og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 246 m.kr., rekstrarniðurstaða samstæðunnar í heild A og B hluta er áætluð jákvæð samtals 89 m.kr. í hagnað.

Rekstrarhagnaður A hluta án afskrifta og fjármagnsliða er 229 m.kr, afskriftir nema 91 m.kr., fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 172 m.kr. Rekstrarniðurstaða A hluta sveitarsjóðs er því áætluð neikvæð um 34 m.kr.
Eignir Sveitarfélagsins Skagafjarðar eru áætlaðar í árslok 7.402 m.kr., þ.a. eignir A hluta 5.508 m.kr. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 5.646 m.kr., þ.a. hjá A hluta 4.400 m.kr. Eigið fé er áætlað 1.756 m.kr hjá samstæðunni og eiginfjárhlutfall því 0,23. Eigið fé A hluta er áætlað 1.108 m.kr. og eiginfjárhlutfall 0,20. Ný lántaka er áætluð 335 m.kr. hjá samstæðunni í heild og að afborganir eldri lána og skuldbindinga verði um 382 m.kr. Reiknaðar lífeyrisskuldbindingar eru 924 m.kr. hjá samstæðu, þar af 840 m.kr. hjá A-hluta. Skuldahlutfall samstæðunnar er áætlað 132%.
Áætlunin gerir ráð fyrir að veltufé frá rekstri A hluta verði jákvætt um 135 m.kr., veltufé frá rekstri samstæðunnar A og B hluta verði jákvætt um samtals 354 m.kr. Þá er gert er ráð fyrir að handbært fé í árslok verði 111 m.kr.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir tók til máls.
Undirrituð mun sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2015 og legg fram eftirfarandi bókun:

Sú fjárhagsáætlun sem nú liggur hér fyrir til samþykktar í sveitarstjórn er ekki áætlun mikilla breytinga þrátt fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor og nýjan meirihluta Framsóknar með aðkomu Sjálfstæðisflokks, þó má sjá merki um kosningaloforð í framkvæmdum. Við í K lista gagnrýnum gefnar væntingar um fjölnotaíþróttahús á Sauðárkróki, en setja á fjármagn í hönnun og kostnaðarmat á næsta ári. Ákvarðanir um nýframkvæmdir á alltaf að taka af yfirvegun og hafa forgangsröðun skýra.

Hvað fræðslumálin varða þá er stefnan tekin á að leikskólinn á Hofsósi verði færður í húsnæði grunnskólans og að tónlistaskólinn á Sauðárkróki flytji í nýtt húsnæði við Árskóla. Því miður er þess ekki að merkja í áætluninni að breytingar verði varðandi húsnæðismál leikskólans í Varmahlið.
K ? listinn telur gangrýnivert að ekki er gert ráð fyrir nægilegu fjármagni til að ráðast í endurbætur á Varmahlíðarskóla og breytingar á húsnæðismálum leikskólans Birkilundar.

Helsti áhættuþátturinn í fjárhagsáætlun meirihlutans er sú óvissa sem ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks boðar s.s. með breytingar og niðurskurð í mennta- og heilbrigðismálum, breytingar á högum langtímaatvinnulausra og breytingar í skattamálum. Breytingarnar geta augljóslega komið harkalega niður á fjárhag sveitarfélagsins og valda sömuleiðis óstöðugleika og óvissu meðal íbúa.

K ? listinn gagnrýnir og er á móti gjaldskrárhækkunum í leik- og heilsdagsskóla sem og fæðishækkanir í leik- og grunnskólum. Þrátt fyrir gangrýni á ákveðna þætti í fjárhagsáætluninni er hægt að vera sammála í veigamestu atriðum og því tekur K- listinn ákvörðun um að sitja hjá en ekki greiða atkvæði gegn fjárhagsáætluninni.

Fjárhagsáætlun er ekki bara rammi um útgjöld og tekjur, heldur er hún stefna um þjónustu og framkvæmdir og leggur línurnar fyrir það öryggi sem börn og fölskyldur ásamt fyrirtækjum í sveitarfélaginu búa við næsta árið.

Ef á að uppfylla réttmætar væningar íbúa um þjónustu og bætta aðstöðu þá er það forgangsverkefni að snúa við neikvæðri íbúaþróun og stuðla að fjölgun íbúa og atvinnutækifæra. Því miður sér K-listinn ekki merki þess í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2015.

Starfsfólki sveitarfélagsins eru færðar þakkir fyrir fyrir góða og árangurríka vinnu við að ná fram sparnaði og auknu hagræði í rekstri.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, K ? lista

Bjarni Jónsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun.
Fjárhagsáætlun hverju sinni tekur mið af stefnumörkun sveitarstjórnar. Þó hálft ár sé liðið frá sveitarstjórnarkosningum hefur ekki enn verið sett fram heildstæð stefna um forgangsverkefni og áherslur á kjörtímabilinu að öðru marki en því sem lesa má úr fjárhagsáætlun og ekki síst framkvæmdaáætlun.
Ný sveitarstjórn tók hinsvegar við góðu búi og mikilvægt er að áfram verði byggt á þeim góða árangri sem náðst hefur síðustu misseri í rekstri sveitarfélagsins. Náðst hefur fram umtalsverð hagræðing með samstilltu átaki án þess að þjónusta við íbúana hafi verið skert. Afkoma sveitarfélagsins er orðin jákvæð og geta til framkvæmda í þágu íbúa stóraukist. Framkvæmdaáætlun einkennist hinsvegar af því að skoða eigi margvísleg verkefni fremur en framkvæmdum. Ekki mun samkvæmt áætluninni takast að hefja framkvæmdir við sundlaug Sauðárkróks á árinu 2015 eins og vonast var til og ekki er gert ráð fyrir því að undirbúa mögulega byggingu á íþróttasal við Höfðaborg sem þjónaði þar skólanum og byggðinni svo dæmi séu nefnd. Eins og oftast nær er sveitarstjórn sammála í meginatriðum um fjárhagsáætlun næsta árs, en fulltrúa greinir á um áherslur og forgang. Meirihluti sveitarstjórnar ræður þar ferðinni nú eins og oftast áður. Þannig vill V-listi fara sér hægar í gjaldskrárhækkanir er beinast að þjónustu við börn og barnafólk eins og hækkun leikskólagjalda er dæmi um og telur að þar eigi fjölskyldu og barnafólk að fá notið enn frekar bættrar rekstrarstöðu sveitarfélagsins.

Fulltrúi V-lista situr hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar, en vill nota tækifærið til að þakka starfsfólki sveitarfélagsins góða vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar og nefndarfólki þeirra störf.
Bjarni Jónsson V-lista

Stefán Vagn Stefánsson tók til máls og lagði fram bókun.
Það er ánægulegt að leggja fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 sem gerir ráð fyrir rekstrarafgangi af samstæðureikningi sveitarsjóðs að upphæð 505 milljónir fyrir afskriftir og fjármagnsliði og 89 milljónir að þeim meðtöldum. Ef áætlanir ganga eftir verður árið 2015 fjórða árið í röð sem gert verður upp með jákvæðri rekstrarniðurstöðu hjá Sveitarfélaginu Skagafirði en slíkur árangur hefur ekki áður náðst í sögu þess. Óhætt er að segja að ákveðinn stöðuleiki hafi náðst í reksturinn og ber að þakka það ábyrgri fjármálastjórn og aðhaldi í rekstri undanfarinna ára. Einnig ber að þakka starfsmönnum sveitarfélagsins en ljóst er að án samstillts átaks þeirra hefði sá árangur ekki náðst líkt og rekstur undanfarinna ára ber með sér sem og sú áætlun sem lögð er fram nú. Mikilvægt er að áfram verði haldið á þeirri braut og aðhalds gætt í rekstri en ljóst er að tap á A-hluta sveitarsjóðs þarf að leiðrétta á komandi árum.
Miklar launahækkanir höfðu áhrif á áætlunina en hækkanir launa á milli áætlana 2014 og 2015 eru rúmar 210 milljónir króna. Það er gleðilegt að geta kynnt fjárhagsáætlun með viðlíka rekstrarafgangi og gert er ráð fyrir hér þrátt fyrir það.

Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 er miðað við að þar sem gjaldskrár væru hækkaðar yrðu þær hækkanir ekki umfram verðlags- og kjarasamningshækkanir. Það er því ljóst að Sveitarfélagið Skagafjörður verður áfram með einhver lægstu gjöld í leik- og grunnskólum landsins sem og að orkukostnaður verður áfram hvað lægstur á íbúa í Skagafirði. Afar mikilvægt er að hafa þau markmið uppi þegar framtíðaruppbygging svæðisins er höfð í huga. Mikilvægt er að halda þannig á málum að eftirsóknarvert sé fyrir ungt fólk að setjast að í Skagafirði til lengri og skemmri tíma. Frá þeirri stefnu má ekki kvika.

Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði rúmar 354 milljónir á árinu og framkvæmt verði fyrir 350 milljónir. Afborganir langtímalána verði 381 milljón og ný lán verði tekin upp á 335 milljónir sem þýðir að skuldir sveitarsjóðs munu lækka á tímabilinu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum má skuldahlutfall sveitarsjóðs ekki fara yfir 150% af tekjum og höfðu ýmsir áhyggjur af því að með þeim framkvæmdum sem ráðist var í á síðasta kjörtímabili myndi sveitarstjóður rjúfa það viðmið. Gerir fjárhagsáætlun 2015 hins vegar ráð fyrir því að skuldahlutfallið verði 132%, en þegar búið er að draga frá lífeyrisskuldbindingu að hluta og skuldir orku- og veitufélaga líkt og lögin gera ráð fyrir, er skuldahlutfall samstæðunnar um 123% sem er vel innan allra marka.

Sú áætlun sem lögð er fram nú var unnin í samvinnu allra flokka, bæði í nefndum sveitarfélagsins og í byggðarráði sem er mikilvægt og ber að þakka fyrir þá vinnu.
Með slíkar kennitölur í rekstri er ljóst að áfram er hægt að halda á þeirri braut sem mörkuð hefur verið til hagsældar og uppbyggingar innviða sveitarfélagsins.

Við óskum Skagfirðingum til hamingju með þá áætlun sem hér er lögð fram og óskum öllum íbúum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Stefán Vagn Stefánsson, fulltrúi Framsóknarflokks
Sigríður Magnúsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokks
Bjarki Tryggvason, fulltrúi Framsóknarflokks
Viggó Jónsson, fulltrúi Framsóknarflokks
Þórdís Friðbjörnsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokks
Sigríður Svavarsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks
Gunnsteinn Björnsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks

Þórdís Friðbjörnsdóttir kvaddi sér hljóðs, þá Bjarni Jónsson, Stefán Vagn Stefánsson og Gunnsteinn Björnsson.

Fjárhagsáætlun 2015 borin undir atkvæði og samþykkt með sjö atkvæðum, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir fulltrúi K- lista og Bjarni Jónsson fulltrúi V- lista óska bókað það þau sitji hjá.

18.Þriggja ára áætlun 2016-2018

Málsnúmer 1408147Vakta málsnúmer

Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri, skýrði þriggja ára áætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana þess, fyrir árin 2016-2018.

Þriggja ára áætlun 2016-2018 borin undir atkvæði og samþykkt með sjö atkvæðum. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir fulltrúi K- lista og Bjarni Jónsson fulltrúi V- lista óska bókað það þau sitji hjá.

19.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - fundargerðir

Málsnúmer 1404065Vakta málsnúmer

Vísað til kynningar frá 321. fundi sveitarstjórnar þar sem skjal vantaði undir málið.
Fundargerð aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 10. október 2014, lögð fram til kynningar á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014

20.Fundagerðir skólanefndar FNV 2014

Málsnúmer 1401010Vakta málsnúmer

Fundargerð skólanefndar Fjölbrautaskóla Norðulands vestra frá 18. nóvember 2014 lögð fram til kynningar á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014

21.Fundagerðir stjórnar Norðurá 2014

Málsnúmer 1401011Vakta málsnúmer

Fundargerðir stjórnar Norðurár bs. frá 18. júní og 2. júlí 2014 lagðar fram til kynningar á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014

22.Aðalfundur SSKS 10. okt 2014

Málsnúmer 1409189Vakta málsnúmer

Fundargerð aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá 10. október 2014 lögð fram til kynningar á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014

23.Fundagerðir stjórnar 2014 - SÍS

Málsnúmer 1401008Vakta málsnúmer

822. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 21. nóvember lögð fram til kynningar á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014

Fundi slitið - kl. 18:15.