Fara í efni

V.I.T. átaksverkefni

Verkefnið V.I.T. – Vinna, Íþróttir og Tómstundir er starfandi á sumrin. Í verkefninu felst að fyrirtæki taki ungmenni á aldrinum 17-18 ára í þjálfun og vinnu í allt að 240 tíma á tímabilinu. Viðkomandi fyrirtæki er skuldbundið til að hafa ungmenni í þjálfun og vinnu í að lágmarki 240 tíma yfir tímabilið.

Reglur og skilmálar verkefnisins:

  • Umsækjandi þarf að sýna fram á að hann hafi sótt um önnur störf og fengið höfnun. Taka þarf fram nafn fyrirtækis og tengilið.
  • Umsækjandi þarf að mæta í atvinnuviðtal hjá tengilið verkefnisins.
  • Viðkomandi fyrirtæki er vinnuveitandi ungmennis og gerir við hann ráðningarsamning.
  • Vinnuveitandi greiðir ungmenni laun eftir kjarasamningi sem um starf ungmennis gildir. Um önnur starfskjör t.d. neysluhlé o.fl. fer einnig eftir kjarasamningi.
  • Vinnuveitandi skuldbindur sig til að þjálfa viðkomandi ungmenni til þeirrar vinnu sem þeim er ætlað að sinna.
  • Ungmenni skulu mæta á réttum tíma, hlýða fyrirmælum, tilkynna um forföll sem vinnuveitandi tilkynnir jafnframt tengilið verkefnisins.
  • Vinnuveitandi skráir niður tíma og kemur þeim til tengiliðar.
  • Ef upp koma mál sem ekki verða leyst á vinnustað skal kalla til tengilið verkefnisins.
  • Vinnuveitandi sendir sveitarfélaginu reikning í lok tímabils vegna verkefnisins. Afrit af útgefnum launaseðlum og ráðningarsamningi ungmennis á tímabilinu skulu fylgja reikningi.