Fara í efni

Fasteignagjöld

Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nálgast álagningarseðla í Íbúagátt hér  á heimasíðunni. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is undir flipanum "Mínar síður".

Álagningarseðlar

Álagningarseðlar fasteignagjalda eru ekki sendir bréfleiðis nema þess sé óskað. Í upphafi árs er auglýstur frestur til að sækja um að fá álagningaseðla bréfleiðis. Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu álagningarseðilsins á "Mínum síðum" sveitarfélagsins og á vefsíðu island.is undir „Mínar síður“.

Gjalddagar

Gjalddagar fasteignagjaldanna eru tíu frá 1. febrúar til og með 1. nóvember. Hægt er að fá að greiða öll gjöldin á einum gjalddaga 1. maí eða fyrr séu þau jöfn eða umfram 28.000 kr. Við álagningu fasteignagjalda ár hvert er auglýstur frestur til að sækja þetta fyrirkomulag.

Greiðslumátar
Beingreiðslur

Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda. Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost.

Boðgreiðslur

Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda. Í byrjun hvers árs er auglýstur frestur til að óska eftir breytingum á greiðslumáta. 

Greiðsluseðlar í tölvupósti

Hægt er að fá greiðsluseðla fyrir fasteignagjöld senda í tölvupósti. Í upphafi hvers árs gefst greiðendum tækifæri á að skrá tölvupóstfang með því að senda tölvupóst á innheimta@ skagafjordur.is Frestur til að skrá sig er auglýstur í upphafi hvers árs. 

Greiðsluseðlar

Innheimtur greiddar með heimsendum greiðsluseðlum. Hvatt er til þess að aðrir greiðslukostir séu notaðir.

Ellilífeyrisþegar og örorkulífeyrisþegar

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2023 vegna tekna ársins 2022. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2024, vegna tekna ársins 2023 er lokið. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2024. Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt.

Reiknivél fasteignagjalda

Í reiknivélinni hér að neðan er hægt að reikna út áætluð fasteignafjöld á húsum í Skagafirði. Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húss og lóðar. Reiknivélin miðar við að um sé að ræða húsnæði sem hefur að lágmarki verið skráð fokhelt – byggingarstig 4 eða hærra.

Reiknivél fasteignagjalda

Frekari upplýsingar

Tekið er á móti fyrirspurnum á netfangið innheimta@skagafjordur.is eða í síma 455 6000.