Fara í efni

Starfshættir Skipulags- og byggingarnefndar

Málsnúmer 1412040

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 265. fundur - 05.12.2014

Til umræðu var bókun Hildar Þóru Magnúsdóttur á fundi sveitarstjórnar 26. nóvember sl sem varðað fundarsköp og starfshætti skipulags- og byggingarnefndar. Fundarmenn eru sammála um að bókunin sé á misskilningi byggð og Hildur Þóra dregur umrædda bókun sína til baka. Sátt er um að skilja þennan ágreining að baki svo góður starfsandi geti ríkt í nefndinni.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 322. fundur - 15.12.2014

Afgreiðsla 265. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 322. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2014 með átta atkvæðum. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá.