Hús frítímans
Hús frítímans er miðstöð frístundastarfs allra íbúa sveitarfélagsins, óháð aldri og er til húsa að Sæmundargötu 7 á Sauðárkróki. Auk starfsemi í þágu eldri borgara, ungmenna og grunnskólabarna er húsið opið fyrir hvers konar félags- og menningarstarfsemi íbúa héraðsins. Hér eru haldnir fundir hverskonar, haldnir eru tónleikar, opnar kóræfingar, fyrirlestrar, námskeið og leikæfingar svo nokkur dæmi séu nefnd. Áherslan er ekki síst á menningu og listir. Við skipulagningu dagskrár Húss frítímans er tekið mið af fjölskyldustefnu. Reynt er að flytja starfsemina framar á daginn og er markmiðið að börn yngri en ellefu áru séu ávallt búin klukkan fimm á daginn og geti notið samvista við foreldra sína eftir vinnu.
Frístundastrætó er í boði til að auðvelda öllum Skagfirðingum, hvar sem þeir búa í héraðinu, að taka þátt í starfinu í Húsi frítímans. Akstur Frístundastrætó er börnum og ungmennum í Skagafirði að kostnaðarlausu.
Hús frítímans heldur úti Facebook síðu þar sem best er að nálgast allar helstu upplýsingar um daglega starfsemi.
Á sumrin eru vinnuskólinn og Sumar-Tím með aðstöðu í Húsi frítímans. Vinnuskólinn er fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára og Sumar-Tím fyrir börn í 1.-4. bekk. Sumar-TÍM stendur fyrir tómstundir, íþróttir og menningu.
Helstu upplýsingar
Heimilisfang: Sæmundargata 7, 550 Sauðárkrókur
Sími: 455 6109
Facebook síða: Hús frítímans
Tölvupóstur: husfritimans1@skagafjordur.is
Dagskrá
Gjaldskrá Húss Frítímans frá 1. janúar 2023
♦ Barnaafmæli 10.285 kr
♦ Fundur/ráðstefna, styttri en 3 klst. færri en 50 manns 25.000 kr
♦ Fundur/ráðstefna, lengri en 3 klst. fleiri en 50 manns 35.000 kr
♦ Gjald f. markaði góðgerðafélaga/”opið hús“, einstaklingar 19.140 kr
♦ Leiga fyrir veislur eða sambærilegt 64.385 kr
♦ Leiga til íþróttafélaga v. gistingar, á mann pr. nótt 1.000 kr
Innifalið er notkun á tækjum hússins ásamt eldhúsaðstöðu.
* Ef er óskað eftir fundi fyrir utan opnunartíma er það háð því að starfsmaður fáist til þess að sinna fundinum.
Frístundastrætó
Frístundastrætó er einungis á föstudögum. Strætóinn fer frá Grunnskólanum austan Vatna, Hofsósi kl: 13:35 með viðkomu á Hólum og þaðan til Sauðárkróks. Lagt af stað heim kl: 17:00 frá frá Húsi frítímans.
Strætóinn fer frá Varmahlíðarskóla kl:13:35 og leggur af stað heim kl: 17:00 frá Húsi frítímans.
Tilgangur þessara ferða er að gefa börnum frá 4.-10. bekk tækifæri til þess að efla tengsl, komast í enn fleiri frístundatilboð eins og íþróttir, tómstundir og fleira. Það er félagsmiðstöðin sem heldur utan um skipulagningu og er alltaf hægt að vera þar í dagskrá en einnig sækja æfingar í íþróttahúsi. Þegar skíðasvæðið opnar, mun rúta keyra uppá skíðasvæði, þannig að hægt verður að stunda bretti og skíði af miklum móð.
Skipulögð dagskrá er gerð fyrir hvern föstudag og er hún hengd upp í skólunum.
Fyrirkomulag skráninga í frístundastrætó er þannig háttað að foreldrar senda tölvupóst, í síðasta lagi á fimmtudegi, á husfritimans1@skagafjordur.is og skrá barn sitt og eftirfarandi upplýsingar:
Dæmi:
Jón Jónsson 8.bekkur, er að koma frá Varmahlíð. Jón fer með frístundastrætó báðar leiðir.
Eða
Jón Jónsson 5.bekkur, er að koma frá Hofsós. Jón fer með frístundastrætó til Sauðárkróks en fer til baka/heim með foreldrum.
Minnum á að allur akstur Frístundastrætó er börnum og ungmennum í Skagafirði að kostnaðarlausu.
Saga Húss frítímans
Hús frítímans er miðstöð tómstundastarfs allra íbúa sveitarfélagsins, óháð aldri, og er nýjung á Íslandi. Það var opnað í mars 2009. Áður var félagsmiðstöð fyrir grunnskólanemendur í skólanum og aðstaða til tómstundastarfs eldri borgara víðsvegar um fjörðinn. Húsnæðið var illa nýtt, ungmennahús vantaði fyrir eldri unglingana og almennan mótsstað fyrir fullorðna.
Undirbúningsvinna hófst 2004 en raunveruleg framkvæmd var ekki fyrr en sumarið 2007. Fulltrúar frá öllum aldurshópum fóru af stað til að vinna saman að hugmyndum. Mikið var síðan notað af þessum hugmyndum þegar endurbygging Húsins byrjaði. Starfsemi í húsinu hófst síðan í febrúar 2009 en formleg opnun var 5. mars.
Eftir árs reynslu sáum við hve fólk náði fljótt vel saman og að ekki urðu neinir árekstrar. Áhugamálin tengja fólk saman.
Auk starfsemi í þágu eldri borgara, ungmenna og grunnskólabarna er húsið opið fyrir hvers konar félags- og menningarstarfsemi íbúa héraðsins. Mikið er um að íþróttafélög og klúbbar fundi. Haldnir eru tónleikar, opnar kóræfingar, fyrirlestrar, námskeið og leikæfingar svo nokkur dæmi séu nefnd. Áherslan er ekki síst á menningu og listir.
Ekki má gleyma því að starfsmenn sveitarfélagsins sem vinna með ungu fólki hafa bækistöð í Húsi frítímans, útideildin, leiðbeinendur og verkstjórar í vinnuskóla og á sumarnámskeiðum sem haldin eru undir heitinu Sumar TÍM.
Við skipulagningu dagskránnar er tekið mið af fjölskyldustefnu. Reynt er að flytja starfsemina framar á daginn. Markmiðið er að börn yngri en ellefu áru séu ávallt búin klukkan fimm á daginn og geti notið samvista við foreldra sína eftir vinnu.
Frístundastrætó er í boði til að auðvelda öllum Skagfirðingum, hvar sem þeir búa í héraðinu, að taka þátt í starfinu í Húsi frítímans.
Mikil aukning hefur orðið í öllu félagsstarfi með þessari nýju aðstöðu enda hefur fjölbreytnin aukist.