Lagður fram tölvupóstur dags. 7. október 2026 þar sem Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 193/2026, „Bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027“. Umsagnarfrestur var til og með 21. október 2026. Leiðtogi fræðslumála sendi inn eftirfarandi umsögn í samráðsgátt stjórnvalda:
„Umsögn um bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027
Það er gott markmið að námsmat í grunnskólum sé skýrt, gagnsætt og auðskiljanlegt fyrir nemendur og foreldra. Einnig er full ástæða til að endurskoða núverandi fyrirkomulag námsmats og notkun bókstafakvarðans. Gagnrýnin á fyrirliggjandi tillögu snýr því ekki að því að tekið verði upp talnakerfi, heldur að því hvernig staðið er að breytingunni, tímaramma hennar og tengingu við gildandi aðalnámskrá þar sem er að mati undirritaðrar byrjað á röngum enda og gefinn of knappur tími gefinn til innleiðingar.
Núgildandi aðalnámskrá grunnskóla byggir í grunninn á námskrá frá 2011 og greinasviðum frá 2013 þó henni hafi verið breytt og hún uppfærð síðan. Núverandi hæfniviðmið og fyrirkomulag námsmats voru þróuð í samhengi við þá nálgun á námsmat sem þar var innleidd, þ.e. bókstafakerfið. Því hefði verið eðlilegra að hefja vinnuna á heildstæðri endurskoðun aðalnámskrár og hæfniviðmiða og ákveða í framhaldinu hvaða matskvarði þjónaði þeirri námskrá best. Í stað þess er nú gerð grundvallarbreyting á birtingarmynd námsmats innan kerfis sem var ekki hannað með þennan talnakvarða að leiðarljósi.
Sérstakar áhyggjur vekur sá skammi tími sem skólum er ætlaður til innleiðingar. Samkvæmt fyrirliggjandi ákvæði eiga breytingarnar þegar að gilda um þá nemendur sem brautskrást vorið 2027 og skólar eiga að birta endurskoðaða skólanámskrá eigi síðar en 10. janúar 2027. Það er óraunhæft að innleiða svo umfangsmikla breytingu á svo skömmum tíma og að auki fyrst hjá þeim nemendum sem eru á síðasta ári grunnskóla og eiga þess vegna skemmstan tíma til að aðlagast breyttu kerfi. Skynsamlegra væri að hefja innleiðingu við lok 4. og 7. bekkjar og láta breytinguna síðan færast með nemendum upp skólakerfið. Þannig mætti gefa skólum allt að þrjú ár til innleiðingar, samræmingar og faglegrar þróunar áður en nýtt kerfi yrði notað við brautskráningu úr 10. bekk.
Mikilvægt er að stjórnvöld séu skýr gagnvart foreldrum og nemendum um að þetta er ekki afturhvarf til þess talnakerfis sem margir þekkja, þar sem 70% árangur jafngildir einkunninni 7, en það talnakerfi er að öllum líkindum það sem kallað var eftir af foreldrum og nemendum. Mennta- og barnamálaráðuneytið gerir sjálft skýran greinarmun á einkunn fyrir einstakt verkefni, þar sem 7 getur til dæmis þýtt 70% árangur og lokaeinkunn, þar sem talan 7 á að merkja að nemandi hafi náð hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Þannig er ekki verið að taka upp gamla talnakerfið sem flestir þekkja, heldur setja tölur utan um hæfnimiðað námsmat sem að verulegu leyti byggir áfram á þeirri hugmyndafræði sem bókstafakerfið byggði á, breytingin er því einfaldlega hliðrun tölustafa í stað bókstafa.
Sérstaklega þarf að skýra hvað felst í einkunnum 8, 9 og 10 í þessum nýja matskvarða. Ef einkunnin 7 staðfestir að nemandi hafi náð þeim hæfniviðmiðum sem aðalnámskrá gerir ráð fyrir við lok grunnskóla vaknar eðlilega spurningin: hvaða námsefni og hvaða hæfni er þá verið að meta með einkunnum 8-10 og hver á að meta hana? Sérstaklega bendi ég á ósamræmi milli leiðbeininga Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) og upplýsinga frá ráðuneytinu um forsendur einkunna 8-10. Samkvæmt leiðbeiningum MMS er forsenda þess að hæfni nemanda sé metin framúrskarandi og hjóti þar með einkunn á bilinu 8-10, að nemandi hafi lokið grunnskólanámi í viðkomandi námsgrein og nái að ljúka framhaldsskólaáföngum fyrir útskrift úr grunnskóla. Ráðuneytið hefur hins vegar tekið sérstaklega fram að nemandinn þurfi ekki að hafa lokið framhaldsskólaáfanga til þess að fá einkunn á bilinu 8-10. Hér er um verulegt misræmi að ræða í grundvallaratriði námsmatsins sem verður að skýra áður en kerfið er innleitt. Jafnframt vaknar sú spurning, ef nám á framhaldsskólastigi á að hafa áhrif á lokaeinkunn úr grunnskóla hvort eðlilegt sé að grunnskólakennari gefi einkunn fyrir nám sem fer fram á öðru skólastigi og er kennt og metið af öðrum kennara samkvæmt öðrum námsviðmiðum. Er ekki eðlilegra að hvert skólastig kenni og meti það sem því skólastigi er uppálagt að kenna og nýti til þess sinn matskvarða?
Skólasamfélagið er ávallt tilbúið í breytingar og þróunar til hagsbóta fyrir nemendur. Það er eðlilegt að endurskoða námsmat, aðalnámskrá og birtingu upplýsinga um námsárangur í takt við breytta tíma. En breytingar verða að vera faglega undirbyggðar, heildstæðar og vel undirbúnar.
Lagt er til að innleiðing verði endurskoðuð og verði frekar með eftirfarandi hætti og í nánu samstarfi við fagfólkið í skólasamfélaginu:
1. ráðist verði fyrst í heildarendurskoðun aðalnámskrár, hæfniviðmiða og námsmats,
2. tölukvarðinn verði þróaður samhliða þeirri vinnu,
3. 8-10 verði skilgreind með skýrum og samræmdum viðmiðum,
4. tengsl grunnskóla- og framhaldsskólanáms við lokaeinkunn verði skýrð sérstaklega,
5. innleiðing hefjist við lok 4. og 7. bekkjar og kerfinu verði gefin þriggja ára innleiðing, þannig að fyrsti árgangurinn fari í gegnum kerfið með fyrirsjáanlegum og skipulögðum hætti.
Markmið breytinganna um skýrara og samræmdara námsmat er gott en það næst hins vegar ekki með of hraðri innleiðingu. Breytingar einungis breytinganna vegna fela ekki í sér gæði heldur óreiðu og óþarfa álag. Hér þarf að vanda til verka.“