Lagt fram erindi Kennarasambands Íslands (KÍ), dags. 8. október 2026. Í erindinu er kallað eftir víðtæku samfélagslegu samtali um framtíð íslensks skólastarfs og mótun framtíðarsýnar fyrir menntakerfið frá leikskóla til framhaldsskóla og tónlistarskóla.
Fræðslunefnd þakkar fyrir framlagt erindi og kynnir sér efni ritsins Blásum byr í seglin. Fyrirhugað er að fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands fundi með skólastjórnendum, fulltrúum nefndarinnar, sveitarstjóra, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og leiðtoga fræðslumála föstudaginn 30. október. Fræðslunefnd væntir mikils af því samtali og leggur áherslu á að niðurstöður þess nýtist við áframhaldandi stefnumótun og faglega uppbyggingu í skólamálum sveitarfélagsins.