Sigurður Arnar Friðriksson, forstöðumaður framkvæmda, fór yfir tillögur að bættu umferðaröryggi í þéttbýli í Skagafirði.
Nefndin samþykkir tillögu um hraðahindrun í Víðigrund á Sauðárkróki sem unnin yrði samhliða gerð nýrra gangstétta þar.
Nefndin samþykkir samhljóða að lækka hraða úr 50 km/klst í 30 km/klst í Varmahlíð og bæta við merkingum um götuþveranir gangandi vegfarenda, samkvæmt tillögu á fundi.
Nefndin samþykkir samhljóða að lækka hraða úr 50 km/klst í 30 km/klst á Hofsóss frá Prestbakka og framhjá grunnskólanum og innan íbúagatna.
Landbúnaðar- og innviðanefnd fagnar tillögunum og samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna framkvæmdaáætlun fyrir aðrar framkomnar tillögur.