Fara í efni

Samráð; Þingsályktunartillaga um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna

Málsnúmer 2609219

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 211. fundur - 01.10.2026

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 178/2026, "Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna".

Umsagnarfrestur er til og með 02.10.2026.

Byggðarráð Skagafjarðar fagnar þeirri áherslu sem lögð er á að bæta lífskjör barna og tryggja jöfn tækifæri óháð efnahagslegri og félagslegri stöðu fjölskyldna. Mikilvægt er að stjórnvöld móti heildstæða stefnu á þessu sviði og efli samstarf ríkis, sveitarfélaga og annarra aðila til að draga úr fátækt barna og stuðla að virkri samfélagsþátttöku þeirra.

Byggðarráð bendir þó á að fjölmargar aðgerðir sem lagðar eru til í stefnunni fela í sér verkefni sem eru á ábyrgð sveitarfélaga eða snerta þjónustu sem sveitarfélög veita, svo sem félagsþjónustu, leikskóla, frístundaheimili, skólaþjónustu, frístundastarf og stuðning við barnafjölskyldur. Þá er einnig gert ráð fyrir auknum stuðningi við þátttöku barna í skipulögðu frístundastarfi, frekari ráðgjöf og þjónustu við fjölskyldur og aðgerðum sem geta haft bein fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög.

Byggðarráð leggur því ríka áherslu á að allar nýjar skyldur eða aukin verkefni sem kunna að falla á sveitarfélög verði að fullu fjármögnuð af ríkissjóði. Nauðsynlegt er að kostnaðarmat fylgi aðgerðunum áður en þær koma til framkvæmda og að áhrif þeirra á rekstur sveitarfélaga séu metin sérstaklega.

Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að horft sé sérstaklega til aðstæðna sveitarfélaga á landsbyggðinni. Kostnaður vegna ferða, aðgengis að þjónustu, þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og annarra þátta sem tengjast búsetu utan stærri þéttbýlissvæða er oft meiri en á höfuðborgarsvæðinu. Nauðsynlegt er að slíkur munur sé tekinn með í reikninginn við útfærslu aðgerðanna og fjármögnun þeirra.

Byggðarráð leggur jafnframt áherslu á að sveitarfélög og þeirra hagsmunasamtök komi með virkum hætti að frekari mótun, framkvæmd og eftirfylgni stefnunnar þannig að tryggt sé að aðgerðir nýtist markhópunum sem best og að ábyrgðarskipting milli ríkis og sveitarfélaga sé skýr.