Fara í efni

Áskorun skólaráðs Árskóla

Málsnúmer 2609149

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 51. fundur - 30.09.2026

Lögð fram áskorun frá skólaráði Árskóla, sem barst með tölvupósti skólastjóra, varðandi brýna þörf á bættri aðstöðu fyrir sérgreinakennslu við skólann (náttúrufræði, textílmennt og tónmennt). Í áskoruninni er óskað eftir því að ráðist verði í heildstæða þarfagreiningu á húsnæði og aðstöðu skólans.

Fræðslunefnd þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að nemendur og starfsfólk búi við fullnægjandi aðstöðu til kennslu í sérgreinum. Fyrirhugað er að fara í vinnu við að meta aðstöðu sérkennslugreina í grunnskólum Skagafjarðar og óskar því fræðslunefnd eftir því að stjórnendur Árskóla vinni þarfagreiningu um aðstöðu sérkennslugreina í Árskóla.