Nemendafjöldi 2026-2027
Málsnúmer 2609115
Vakta málsnúmerFræðslunefnd - 51. fundur - 30.09.2026
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um nemendafjölda í skólum Skagafjarðar skólaárið 2026-2027. Við upphaf skólaárs eru 244 nemendur í leikskólum Skagafjarðar, sem er sambærilegur fjöldi og við upphaf síðasta skólaárs. Í grunnskólum Skagafjarðar eru 563 nemendur, samanborið við 559 nemendur við upphaf síðasta skólaárs, og hefur þeim því fjölgað um fjóra milli ára. Við Tónlistarskóla Skagafjarðar eru 175 nemendur en voru á síðasta skólaári 158 og fjölgar því nemendum tónlistarskólans um 17 á milli ára.