Borgarteigur 7 - Umsókn um sameiningu séreignahluta
Málsnúmer 2609018
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 93. fundur - 04.09.2026
Ásta Pálmadóttir sækir f.h. Svarðarhólls ehf. um leyfi til að sameina séreignir með fasteignanúmerin F2131320 og F2131321 í iðnaðarhúsnæði/fjöleignahúsi sem stendur á lóðinni númer 7 við Borgarteig á Sauðárkróki. Framlagðir uppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Hallgrími Inga Jónssyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 74370001, númer A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir 23.06.2026, breytt 17.08.2026. Fyrir liggur eignaskiptayfirlýsing vegna umbeðinna breytinga sbr. lög um fjöleignahús nr. 26/1994. Erindið samþykkt.