Brotholt L241545 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2607132
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 93. fundur - 04.09.2026
Hallgrímur Ingi Jónsson tæknifræðingur sækir f.h. Trausta Helga Atlasonar um leyfi til að flytja og koma fyrir gestahúsi í landi Brotholts, L241545. Húsið sem um ræðir er byggt á lóð, kennslusvæði FNV við Skagfirðingabraut 26 á Sauðárkróki sbr. samþ. byggingaráform og stöðuleyfi frá 22. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 24.08.2023. Einnig sótt um að leyfi til að byggja við húsið og breyta því í íbúðarhús. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 72130801, númer A-100, A-101 og A-102, dagsettir 15.07.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2, skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.