Fara í efni

Tillaga um framkvæmd milliuppgjörs

Málsnúmer 2605230

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 196. fundur - 27.05.2026

Lagður fram tölvupóstur frá Einari E. Einarssyni, dagsettur 23. maí sl. Í tölvupóstinum fer Einar þess á leit að eftirfarandi tillaga verði tekin á dagskrá byggðarráðs. Tillagan er svohljóðandi:

"Tillaga: Undirritaður leggur til að endurskoðandi sveitarfélagsins framkvæmi milliuppgjör pr. 30.06 2026, fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess. Í uppgjörinu komi fram rekstrarniðurstaða í samanburði við fjárhagsáætlun, uppreiknaðar eignir, skuldir og skuldbindingar og helstu lykiltölur sambærilegar þeim sem birtast í ársreikningi hverju sinni. Leggja skal niðurstöðuna fyrir byggðarráð eigi síðar en í lok september 2026.

Greinargerð:
Rekstur og fjárhagsstaða sveitarfélagsins Skagafjarðar var mjög góð í lok árs 2025, skuldir hlutfallslega litlar og veltufé frá rekstri í sögulegu hámarki, svo eitthvað sé nefnt. Frá áramótum hefur hins vegar mjög margt verið gert og samþykkt sem hefur haft mikil áhrif á rekstrar- og efnahagsreikning sveitarfélagsins. Vegur þar þyngst sala á 52 íbúðum sveitarfélagsins til Leigufélagsins Bríetar ehf. Við þessa sölu urðu miklar tilfærslur á eignum sveitarfélagsins ásamt mjög jákvæðum áhrifum af þeirri uppgreiðslu áhvílandi skulda sem urðu vegna sölunnar, ásamt því sem sveitarfélagið eignaðist hlut í Leigufélaginu Bríeti ehf. Einnig hefur verið undirritaður samningur við ríkisvaldið um yfirtöku á afmörkuðu landi undir þéttbýlinu á Hólum í Hjaltadal, með eignatilfærslu og peningagreiðslu til sveitarfélagsins vegna fyrirsjáanlegs kostnaðar við fráveitu staðarins. Ljóst er að áhrif þessara tveggja samninga hafa mikil á fjárhag sveitarfélagsins, ásamt áhrifum á skulda- og eignastöðu þess.

Frá og með 1. júní 2026 tekur ný sveitarstjórn við rekstri sveitarfélagsins og því er mikilvægt að fyrir liggi staðfest uppgjör á rekstri og stöðu sveitarfélagsins fyrir fyrri helming ársins þannig að rekstrar- og fjárhagsstaða sveitarfélagsins við skiptin séu öllum ljós. Benda má á að sambærileg milliuppgjör hafa áður verið framkvæmd við breytingar á meirihlutum í sveitarstjórn Skagafjarðar.

Fyrir hönd Framsóknarfélags Skagafjarðar
Einar E. Einarsson"

Byggðarráð samþykkir samhljóða að verða við beiðninni og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs framkvæmd milliuppgjörsins.