Fara í efni

Lóðarleigusamningar vegna uppbyggingar hraðhleðslustöðva á Sauðárkróki og Hofsósi

Málsnúmer 2605222

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 196. fundur - 27.05.2026

Lögð voru fram drög að tveimur lóðarleigusamningum milli Skagafjarðar og Orku Náttúrunnar.

Annars vegar er um að ræða Túngötu 1 á Hofsósi. Lóðin hefur landnúmerið L241013 og fasteignanúmerið F2542585. Staðfang lóðar er "Túngata 1".

Hins vegar er um að ræða lóðarleigusamning á Flæðum á Sauðárkróki. Lóðin hefur landnúmerið L239828 og fasteignanúmerið F2539232. Staðfang lóðar er "Flæðar Hleðslustöð".

Ársleiga er 4% af fasteignamati lóðar og fyrsti gjalddagi 1. júní 2026.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að lóðarleigusamningum, dags. 28. maí 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita samningana fyrir hönd Skagafjarðar.