Naustabakki L237067 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Málsnúmer 2605085
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 86. fundur - 29.05.2026
Ingvar Gýgjar Sigurðarson tæknifræðingur sækir f.h. Ævars Jóhannssonar um leyfi til að byggja sökkla og koma fyrir frístundahúsi á lóðinni Naustabakka, L237067. Húsið sem um ræðir byggt árið 2022, skráð á lóðinni Fornihvammur, L239409, F2539180, Hörgársveit í Eyjafirði og þar fengið útgefið lokaúttektarvottorð. Framlagður aðaluppdráttur gerður hjá Áræðni ehf. af umsækjanda. Uppdrættir eru í verki 3416, númer A-100 og A-101, dagsettir 15.04.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.