Fara í efni

17. júní 2026

Málsnúmer 2604115

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 196. fundur - 27.05.2026

Deildarstjóri þróunar, miðlun og menningar óskar eftir heimild til að loka eftirtöldum gatnamótum á meðan skrúðganga vegna þjóðhátíðardags þann 17. júní n.k. á sér stað:

Gatnamót Skagfirðingabrautar/Skólastígs.
Gatnamót Skagfirðingabrautar/Ránarstígs.
Gatnamót Skagfirðingabrautar/Bárustígs.
Gatnamót Skagfirðingabrautar/Öldustígs.
Gatnamót Skagfirðingabrautar/Hegrabrautar/Sæmundarhlíðar rétt á meðan gangan fer inn í portið.
Gatnamót Sæmundarhlíðar og Spítalastígs

Sveitarfélagið mun koma upp lokunarpóstum í samvinnu við verkefnastjóra menningar-, ferðamála- og viðburðaverkefna. Tryggt verður að aðgengi sjúkrabíla og löggæsluaðila verði gott þrátt fyrir lokanir.

Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða fyrir sitt leyti og að uppfylltum öðrum tilskyldum leyfum, ásamt því að hjáleiðir verði vel merktar.