Fara í efni

Samráð; Drög að breytngu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga

Málsnúmer 2603209

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 187. fundur - 25.03.2026

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 66/2026, "Drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga". Umsagnarfrestur er til og með 03.04. 2026.

Byggðarráð Skagafjarðar fagnar afar jákvæðum skrefum sem birtast í umræddu máli, þ.e. að fallið verði frá föstum tölulegum viðmiðum í skilgreiningum á því hvað telst þéttbýli og hvað dreifbýli, sem dreifiveitur nota í ákvarðanatöku fyrir því hvað telst falla undir dreifbýlisgjaldskrá og hvað fellur undir þéttbýlisgjaldskrá. Það er mjög mikilvægt að dreifiveitur þurfi að sýna fram á sannanlegan kostnaðarauka ef þær vilja beita dreifbýlisgjaldskrá.
Byggðarráð Skagafjarðar leggur hins vegar til að gjaldskrár dreifiveitna verði samræmdar að öllu leyti, þannig að sama gjaldskrá gildi fyrir dreifbýli og þéttbýli. Það er löngu tímabært að þetta skref verði stigið til fulls, líkt og gert var t.a.m. hvað varðar gömlu svæðisnúmerin í fastlínu símakerfis, þar sem mismunandi gjaldskrá var eftir því á milli hvaða svæða var hringt. Bendir byggðarráð á að í Skagafirði er sama gjaldskrá í gildi hjá Skagafjarðarveitum fyrir einingu hvers rúmmeters vatns miðað við orkuinnihald, hvort sem íbúar búa í dreifbýli eða þéttbýli. Hið sama gildir einnig um sorpgjöld sem eru þau sömu hvort sem íbúar búa í þéttbýli eða dreifbýli. Það á að vera sjálfsagður hluti af byggðastefnu stjórnvalda að gjaldtaka gagnvart íbúum landsins sé sem sambærilegust, hvort sem íbúar búa í þéttbýli eða dreifbýli.