Lögð fram yfirlýsing frá fundi íbúa og velunnara Hóla í Hjaltadal og Háskólans á Hólum sem haldinn var 11. mars sl. Í yfirlýsingunni eru settar fram nokkrar kröfur, m.a. þá að ríkið, Háskólinn á Hólum og sveitarfélagið Skagafjörður vinni í sameiningu, með íbúum, að því að umhverfi Hólastaðar komist til þess vegs og virðingar sem sómi er að.
Byggðarráð Skagafjarðar þakkar fyrir senda yfirlýsingu frá fundi íbúa og velunnara Hóla í Hjaltadal.
Byggðarráð og sveitarstjórn Skagafjarðar hafa alla tíð stutt við uppbyggingu og starfsemi Háskólansá Hólum og viljað að Hólastaður væri sem glæsilegastur og að skólanum vegnaði sem best. Frá stofnun sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur verið í gangi samtal við ríkisvaldið um áhersluverkefni stjórnenda hverju sinni og um framtíðarsýn á þróun staðarins. Margt hefur áorkast í gegnum tíðina en vissulega mætti margt hafa gengið hraðar í þessum samskiptum. Fyrir utan að styðja beina uppbyggingu skólans hefur áhersla sveitarfélagsins verið á að skýra hlutverk hvors aðila, en þess ber að geta að Hólar í Hjaltadal eru ríkisjörð og ríkið því eigandi gatna og lóða á staðnum og innheimtir t.a.m. lóðarleigu sem slíkur. Hefur sveitarfélagið lagt til þrjár leiðir í þessum efnum, þ.e. 1) að ríkið sjái áfram um þá umhirðu svæðisins sem Háskólinn á Hólum sinnti áður, 2) að ríkið geri samning við sveitarfélagið Skagafjörð um ýmsa þjónustu sem veita þarf íbúum, 3) að kannaðir verði möguleikar þess að sveitarfélagið Skagafjörður yfirtaki með öllu eignarhald, umsjón og þjónustu þéttbýlis á Hólum að undangenginni fjármögnun ríkisins á lagfæringum og endurgerð fráveitukerfis fyrir svæðið. Standa vonir til að niðurstaða fáist í þessi mál á næstu vikum.
Þá hefur ríkið sjálft haft uppi hugmyndir um framkvæmdir af hálfu þess og annarra aðila, bæði heima á Hólum og einnig Sauðárkróki. Má þar nefna kaup á Brúnastöðum, uppbyggingu kennsluaðstöðu fyrir hestafræðideild og ferðamáladeild á svæði hestafræðideildar á Hólum, uppbyggingu lagareldishúsnæðis á Sauðárkróki og uppbyggingu kennsluaðstöðu fyrir fiskeldis- og fiskalíffræðideild og ferðamáladeild á Sauðárkróki, ásamt hugmyndum um stofnun Hólastofu um þjóðmenningarstaðinn Hóla í Hjaltadal. Hvað varðar aðalbyggingu Háskólans á Hólum, þá hefur sveitarfélagið Skagafjörður lagt áherslu á að sú bygging verði gerð upp enda hefur hún mikið menningarsögulegt gildi fyrir svæðið í heild sinni. Nauðsynlegt er að aðalbygging og aðrar svipmiklar byggingar á Hólum verði staðarprýði í stað þess að verða niðurníðslu að bráð.
Í öllum samtölum sem sveitarstjórn hefur átt við þingmenn og ráðherra um þessa uppbyggingu hafa þeir verið hvattir til dáða og margoft verið skorað á ráðherra og ríkisstjórnir að hraða þessum framkvæmdum og tryggja þannig uppbyggingu Háskólans á Hólum og Hólastaðar.
Það er því gleðilegt að nú skuli stefna í útboð á nýju lagereldishúsi sem staðsett verður á Sauðárkróki. Einnig að nýlega hafi byrjað nám í járningum og hófhirðu, sem kennt er á Hólum. Með nýrri háskólasamstæðu Háskóla Íslands bindur byggðarráð vonir til að unnt sé að koma upp fleiri námsleiðum á Hólum og Sauðákróki og einnig að heimild til að skipuleggja doktorsnám og brautskrá doktora við aðildarháskólann á Hólum verði að veruleika. Þá er mikið fagnaðarefni að höfuðstöðvar Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands flytjist í Skagafjörð.
Byggðarráð styður einnig allar hugmyndir um eflingu á starfsemi Þjóðkirkjunnar á Hólum með fjölgun stöðugilda og að embætti vígslubiskups Hólastiftis verði þar áfram sem og önnur starfsemi sem ríkið myndi vilja byggja þar upp.
Byggðarráð Skagafjarðar lýsir sig reiðubúið til áframhaldandi samtals við forsvarsmenn Háskólans á Hólum og ríkisins um uppbyggingu og framtíð Háskólans á Hólum og Hólastaðar.
Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða eftirfarandi bókun: