Lagt fram minnisblað með niðurstöðum viðhorfskönnunar vegna sameiginlegs fræðsludags starfsfólks skóla í Skagafirði sem haldinn var 19. ágúst 2026. Fram kemur að almenn ánægja var með daginn (83,3% svarenda ánægð eða mjög ánægð) og vinnustofur dagsins fengu sérstaklega góða einkunn. Jafnframt liggja fyrir ábendingar þátttakenda um áherslur fyrir næsta fræðsludag, svo sem aukna sérhæfingu eftir skólastigum, áherslu á vellíðan, sérþarfir og hagnýt stjórnunartæki.
Fræðslunefnd fagnar góðri þátttöku og jákvæðum viðbrögðum við fræðsludeginum. Nefndin þakkar skipuleggjendum fyrir vel heppnaðan dag og felur sviðsstjóra að nýta framkomnar ábendingar við skipulagningu næsta fræðsludags.