Byggðarráð Skagafjarðar - 187
Málsnúmer 2603024F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026
Fundargerð 187. fundar byggðarráðs frá 25. mars 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 48. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 187 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 187. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 187 Einar E. Einarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Lögð fram umsagnarbeiðni frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsett 19. mars 2026 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Eyþórs Einarssonar, kt. 270776-4189 um leyfi til að reka gististað í flokki II - H Frístundahús að Sólheimagerði, 561 Varmahlíð, fasteignanúmer F2142075.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við leyfisveitinguna að fenginni jákvæðri umsögn annarra umsagnarskyldra aðila. Bókun fundar Einar E. Einarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Afgreiðsla 187. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 187 Landbúnaðar- og innviðanefnd bókaði eftirfarandi um refa- og minkaveiðiáætlun fyrir árið 2026, á 44. fundi hennar 19. mars 2026:
"Lögð fram áætlun fyrir refa- og minkaveiðar 2026 ásamt uppfærðri gjaldskrá sem gerir ráð fyrir 5% hækkun.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða og felur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að kynna veiðimönnum niðurstöðuna áður en nýtt veiðitímabil hefst 1. maí."
Byggðarráð samþykkir áætlunina og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Málið var tekið inn með afbrigðum á 47. fundi sveitarstjórnar þann 25. mars sl. og afgreitt á þeim fundi. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 187 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 66/2026, "Drög að breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga". Umsagnarfrestur er til og með 03.04. 2026.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar afar jákvæðum skrefum sem birtast í umræddu máli, þ.e. að fallið verði frá föstum tölulegum viðmiðum í skilgreiningum á því hvað telst þéttbýli og hvað dreifbýli, sem dreifiveitur nota í ákvarðanatöku fyrir því hvað telst falla undir dreifbýlisgjaldskrá og hvað fellur undir þéttbýlisgjaldskrá. Það er mjög mikilvægt að dreifiveitur þurfi að sýna fram á sannanlegan kostnaðarauka ef þær vilja beita dreifbýlisgjaldskrá.
Byggðarráð Skagafjarðar leggur hins vegar til að gjaldskrár dreifiveitna verði samræmdar að öllu leyti, þannig að sama gjaldskrá gildi fyrir dreifbýli og þéttbýli. Það er löngu tímabært að þetta skref verði stigið til fulls, líkt og gert var t.a.m. hvað varðar gömlu svæðisnúmerin í fastlínu símakerfis, þar sem mismunandi gjaldskrá var eftir því á milli hvaða svæða var hringt. Bendir byggðarráð á að í Skagafirði er sama gjaldskrá í gildi hjá Skagafjarðarveitum fyrir einingu hvers rúmmeters vatns miðað við orkuinnihald, hvort sem íbúar búa í dreifbýli eða þéttbýli. Hið sama gildir einnig um sorpgjöld sem eru þau sömu hvort sem íbúar búa í þéttbýli eða dreifbýli. Það á að vera sjálfsagður hluti af byggðastefnu stjórnvalda að gjaldtaka gagnvart íbúum landsins sé sem sambærilegust, hvort sem íbúar búa í þéttbýli eða dreifbýli. Bókun fundar Afgreiðsla 187. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.