Fara í efni

Fjórblómið - mönnun grunnskóla

Málsnúmer 2603022

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 46. fundur - 19.03.2026

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti samstarfsverkefni fjögurra sveitarfélaga sem hafa verið að skoða að þróa með sér samrýnt mönnunarlíkan fyrir grunnskóla. Það er mikill hagur af því að geta unnið líkan fyrir grunnskóla í samstarfi við sveitarfélög sem eru með álíka skólastærðir og skólagerðir. Samstarfið stendur yfir frá janúar 2026 til byrjun apríl 2026 og ef það gengur vel eru væntingar um að samstarfið haldi áfram næstu árin.