Fara í efni

Viðhorf til breytinga á gjaldskrá og skráningardaga í leikskólum

Málsnúmer 2603010

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 46. fundur - 19.03.2026

Könnun var send rafrænt á foreldra leikskólabarna í Skagafirði með það að markmiði að ná fram viðhorfi þeirra til nýs fyrirkomulags skráningardaga og breyttrar gjaldskrár. Alls bárust 93 svör. Niðurstöður benda til þess að töluverður hluti foreldra telji að nýtt fyrirkomulag skráningardaga og breytt gjaldskrá í leikskólum Skagafjarðar sé töluverð áskorun. Kerfið hentar illa foreldrum í fullri vinnu, einstæðum foreldrum og þeim sem hafa takmarkað svigrúm til að vera heima með börn á skráningardögum. Einnig lýsa margir foreldrar því að breytingarnar hafi haft í för með sér aukið álag og kostnað þrátt fyrir að markmiðið hafi verið að stuðla að sparnaði. Þá hafa foreldrar áhyggjur af því að börn séu stundum án vina sinna í leikskólanum á skráningardögum. Jafnframt kemur fram að upplýsingagjöf um breytingarnar hafi almennt verið talin góð. Helstu ábendingar foreldra snúa að framkvæmd kerfisins, sveigjanleika og fjölda skráningardaga. Meðal tillagna sem fram komu voru aukinn sveigjanleiki, fækkun skráningardaga og endurskoðun á gjaldtöku.

Önnur könnun var send á starfsfólk leikskóla í Skagafirði til að kanna viðhorf þeirra til breytinganna. Könnunin var send á rúmlega 100 starfsmenn og bárust 26 svör. Sökum þess hve lágt svarhlutfallið reyndist skal líta á niðurstöðurnar sem vísbendingu um viðhorf starfsfólks. Niðurstöður sýna að skoðanir starfsfólks eru skiptar varðandi áhrif breytinga á gjaldskrá og skráningardaga. Um 46% starfsmanna telja álag hafa minnkað, á meðan 23% eru því ósammála, og stór hópur tekur ekki afstöðu með eða á móti. Ánægja með breytingarnar mælist þó nokkur, en 54% segjast ánægð eða mjög ánægð, á meðan 42% eru hlutlaus. Þegar litið er til áhrifa á faglegt starf benda niðurstöður til þess að starfsfólk sjái þar bæði tækifæri og áskoranir, og mat á svigrúmi til undirbúnings er nokkuð mismunandi. Skráningardagar virðast helst kalla á frekari endurskoðun meðal annars vegna þess að barnahópar eru stundum fámennir og starfsfólk upplifir auknar tilfærslur á milli deilda. Á sama tíma kemur fram jákvæð reynsla á sumum starfsstöðvum, þar sem starfsandi og vinnuumhverfi hafa batnað.

Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að rýna niðurstöður könnunar með skólastjórnendum. Skráningardagar verða endurskoðaðir að teknu tilliti til 4 ?5 vikna sumarlokana og verða breytingar kynntar vel fyrir foreldrum og starfsfólki þegar þær liggja fyrir.