Fara í efni

Samráð; Frumvarp til laga um breytingar á búvörulögum nr. 99 frá 1993

Málsnúmer 2602081

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 181. fundur - 11.02.2026

Á Alþingi er til umfjöllunar stjórnarfrumvarp frá atvinnuvegaráðherra um breytingu á búvörulögum nr. 99/1993, 374. mál.
Byggðarráð Skagafjarðar telur að nái frumvarpið fram að ganga í óbreyttri mynd hafi það verulega neikvæð áhrif á starfsumhverfi íslensks landbúnaðar. Með breytingu 71. greinar búvörulaga er ljóst að verið er að rjúfa áratuga langa þróun hagræðingar í íslenskum mjólkuriðnaði sem skilað hefur lægri framleiðslukostnaði, bændum hærra afurðaverði en ella og neytendum hágæða framleiðsluvörur á hagkvæmara innkaupaverði en annars væri raunin. Með takmörkunum á samstarfi og sameiningu afurðastöðva í kjöt- og mjólkuriðnaði er þannig verið að vinna gegn hagræðingu í íslenskum landbúnaði, sporna gegn framþróun í greininni, veikja samkeppnisstöðu greinarinnar og draga úr tækifærum til aukinnar nýsköpunar. Með því er enn vegið að afkomuöryggi bænda og um leið unnið gegn áherslum á eflingu byggða um land allt og styrkingu fæðuöryggis þjóðarinnar.

Byggðarráð Skagafjarðar tekur jafnframt undir með Bændasamtökum Íslands um að frumvarpsdrögin gangi gegn þeirri þróun sem átt hefur sér stað undanfarna áratugi í mjólkuriðnaði, þar sem sameining og hagræðing hafa skilað miklum ávinningi, allt að 5 milljörðum króna árlega, bændum og neytendum til hagsbóta. Að sama skapi er áætlað að hagræðing í kjötiðnaði muni skila um 2 milljörðum króna á ári. Með breytingunum er því gengið þvert gegn yfirlýstri stefnu ríkisstjórnar Íslands um að efla verðmætasköpun í íslenskri matvælaframleiðslu og tryggja sjálfbæra innlenda framleiðslu.