Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
Málsnúmer 2602013
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 181. fundur - 11.02.2026
Tekið fyrir erindi frá framkvæmdastjóra og flugrekstrarstjóra Atlantsflugs ehf, dag. 2. febrúar 2026, þar sem vakin er athygli á þingsályktunartillögu á Alþingi sem fjallar um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri. Telja bréfritarar að raunhæfur valkostur við þá tillögu væri að koma upp 4 minni og sérhæfðari sjúkraþyrlum, staðsettum í mismunandi landshlutum. Slík lausn myndi m.a. færa bráðaþjónustu nær íbúum í fleiri sveitarfélögum, draga verulega úr viðbragðstíma í alvarlegum tilfellum, styðja við heilbrigðisstofnanir og bráðaþjónustu á svæðinu í heild, tryggja jafnræði í aðgengi að lífsbjargandi þjónustu óháð búsetu, stytta tíma þegar þörf er á sjúkraflugi milli landshluta, og skila meiri samfélagslegum ábata fyrir sama eða lægri heildarkostnað. Hvetja bréfritarar sveitarstjórnir til að nýta umsagnarfrestinn og koma fram með sjálfstæða umsögn þar sem tekið er mið af hagsmunum íbúa og mikilvægi þess að fjármunir ríkisins séu nýttir á sem skilvirkastan hátt.