Fara í efni

Fellsborg L231851 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2509173

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 71. fundur - 24.09.2025

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. F-Borgar ehf. um leyfi til að koma fyrir frístundahús á jörðinni Fellsborg, L231851 í Hegranesi. Húsið sem um ræðir er byggt á lóð, kennslusvæði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra við Skagfirðingabraut 26 á Sauðárkróki, samþykkt á 35. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 28.09.2016. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 74890200, númer A-100, A-101, A-102, A-103 og A-104, dagsettir 05.09.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.