Hólabrekka L146200 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2505011
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 75. fundur - 01.12.2025
Guðmundur Þór Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Sigríðar J. Helgadóttur og Snorra Snorrasonar um leyfi til að byggja gestahús á lóðinni Hólabrekku, L146200. Húsið verður byggt að Lambeyri og flutt þaðan á ofangreinda lóð. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Guðmundi Þór Guðmundssyni byggingarfræðingi. Uppdrættir í verki 0125, númer A 01, A 02, og A 03, dagsettir 15.01.2025. Byggingin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.