Starfshópur á vegum innviðaráðuneytisins vinnur tillögu að stefnu fyrir virka ferðamáta (ganga og hjólreiðar) og smáfarartæki. Starfshópnum var falið að meta stöðu virkra ferðamáta og smáfarartækja á Íslandi ásamt valkostum sem til staðar eru til að efla ferðamátana.
Starfshópurinn óskar hér með eftir ábendingum frá viðeigandi sérfræðingum sveitarfélaga um hvernig hægt er að bæta stöðu ferðamátanna, þar með talið aðgengi og öryggi.
Vakin er athygli á skömmum fyrirvara en einnig er stefnt á að birta tillögu að stefnunni í Samráðsgátt í vor svo þá mun gefast frekara tækifæri til athugasemda. Starfshópurinn telur þó mikilvægt að fá athugasemdir frá sveitarfélögunum á þessu stigi vinnunnar.
Til upplýsingar, þá er starfshópurinn skipaður fulltrúum frá Háskóla Íslands, innviðaráðuneytinu, Samgöngustofu, Sambandi Íslenskra sveitarfélaga, Landssamtökum hjólreiðamanna og Vegagerðinni.
Er þess óskað að svör berist í hrefna.hallgrimsdottir@irn.is eigi síðar en 28. apríl nk.