Fara í efni

Erindi til skipulagsnefndar frá Fjáreigendafélagi Sauðárkróks

Málsnúmer 2504136

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 72. fundur - 30.04.2025

Lagt fram erindi frá Fjáreigendafélagi Sauðárkróks dags. 15.04.2025 þar sem óskað er eftir við vinnslu Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 að félaginu verði fundið nýtt landsvæði/athafnarsvæði fyrir skipulagða fjárhúsabyggð, fjárborg sem tæki við af núverandi svæði félagsins á Nöfunum þar sem núverandi svæði á að skipuleggja sem framtíðar íbúðarsvæði Sauðárkróks.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að þakka fyrir erindið en bendir jafnframt á að um framtíðarstefnu sé að ræða og ekki verið að taka landsvæðið undir önnur not á næstu árum.