Pacta lögmannsstofa sér um persónuverndarþjónustu sveitarfélagsin og hefur gert um nokkurt skeið. Miklar breytingar hafa orðið á stofunni, meðal annars hefur skrifstofunni á Sauðárkróki verið lokað, fækkað hefur á stofunni á Akureyri. Vegna breyttra aðstæðna núverandi þjónustuaðila var ákveðið að kanna aðra möguleika í stöðunni og vera verðsamanburð hjá öðrum þjónustuveitendum.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs lagði fram samanburð á þremur tilboðum í þjónustuna. Fyrirtækið Sekretum á lægsta tilboðið í þjónustuna en ljóst er að um er að ræða nokkurn kostnaðarauka. Í ljósi þess að sveitarfélagið hefur tekið mikinn kostnaðarauka í viðaukum 1 og 2 við fjárhagsáætlun ársins 2025 þykir ekki skynsamlegt að samþykkja aukinn kostnað verði hjá því komist.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga til samninga við Sekretum um þjónustuna. Samningar taki gildi 1. janúar 2026. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að vísa málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir fjárhagsáætlun ársins 2026.