Landbúnaðar- og innviðanefnd - 21
Málsnúmer 2502018F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 36. fundur - 12.03.2025
Fundargerð 21. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 20. febrúar 2025 lögð fram til afgreiðslu á 36. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 21 Lagt fram erindisbréf Landbúnaðar- og innviðanefndar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir erindisbréfið samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 21. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 36. fundi sveitarstjórnar 12. mars 2025 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 21 Farið var yfir kostnað við endurnýjun sorpíláta, en aðeins hefur borið á að tunnur hafi týnst í vondum veðrum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd skorar á íbúa Skagafjarðar að tryggja að tunnur séu vel festar til að koma í veg fyrir óþarfa kostnað. Bókun fundar Afgreiðsla 21. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 36. fundi sveitarstjórnar 12. mars 2025 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 21 Fundagerð Hafnasamband Íslands v. janúar lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 21. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 36. fundi sveitarstjórnar 12. mars 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 21 Fjallskilastjórum og stjórnum fjallskilanefnda í Skagafirði var boðið til súpufundar á Hótel Varmahlíð þar sem farið var yfir ýmis mál tengd fjallskilum. Mættir voru 37 fulltrúar frá öllum fjallskiladeildum Skagafjarðar. Einar Einarsson fór yfir ýmis málefni sem snúa að samskiptum sveitarfélagsins við fjallskiladeildirnar. Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri stjórnaði umræðum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd þakkar góða mætingu og líflegar umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 21. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 36. fundi sveitarstjórnar 12. mars 2025 með níu atkvæðum.