Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 20

Málsnúmer 2502004F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 35. fundur - 12.02.2025

Fundargerð 20. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 6. febrúar 2025 lögð fram til afgreiðslu á 35. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 20 Tekið fyrir erindi frá Sótahnjúki ehf varðandi snjómokstur að sundlauginni Sólgörðum.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela Sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að ganga frá útfærslu á vinnureglum um snjómokstur sem tilheyrir sundlauginni á Sólgörðum.
    Ólöf Ýr Atladóttir sat fundinn í fjarfundarbúnaði undir þessum lið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 20 Lögð fram endurskoðuð samþykkt um hunda- og kattahald í þéttbýlisstöðum Skagafjarðar. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samþykktina með áorðnum breytingum samhljóða og vísar til Byggðaráðs.
    Einnig farið yfir drög að gjaldskrá um hunda- og kattahald þar sem gert er ráð fyrir að gjöldin lækki í samræmi við breytingu á þjónustu.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að vinna að endanlegri útgáfu gjaldskrár.
    Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 20 Rætt um heildaráætlun hitaveituvæðingar í Skagafirði og hvernig hægt sé að klára þau svæði sem útaf standa með lagningu hitaveitu eða varmadæluvæðingar. Sviðstjóra Veitu og framkvæmdasviðs falið að vinna áætlun og leggja fyrir nefndina. Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðar- og innviðanefnd - 20 Borist hefur ósk frá Stefáni Inga Gestsyni um samning vegna vetrarveiði á ref.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd Skagafjarðar samþykkir samhljóða að fela Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að gera samning við Stefán Inga.
    Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með níu atkvæðum.
  • .4 2501428 Fuglaflensa í ref
    Landbúnaðar- og innviðanefnd - 20 Greinst hefur fuglaflensa í skagfirskum ref.
    Landbúnaðar- og innviðanefnd lýsir áhyggjum af þróun mála og hvetur íbúa til að vera á varðbergi gagnvart mögulega sýktum dýrum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 20. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með níu atkvæðum.