Byggðakvóti 2024-2025
Málsnúmer 2502003
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 144. fundur - 30.04.2025
Lagt fram bréf dagsett 21. apríl 2025 frá fulltrúum smærri útgerða í Skagafirði þar sem óskað er eftir því að sveitarstjórn Skagafjarðar endurskoði úthlutunarreglur sem birtar hafa verið á vef atvinnuvegaráðuneytisins vegna byggðakvóta til Skagafjarðar.
Byggðarráð Skagafjarðar bendir á að sveitarstjórn Skagafjarðar fær til umsagnar almennar reglur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa og getur gert tillögur að breytingum, líkt og aðrar sveitarstjórnir. Á slíkt hefur verið látið reyna líkt og bréfriturum er kunnugt um varðandi t.d. vinnsluskyldu og úthlutun kvóta til báta og skipa. Bréfriturum er einnig kunnugt um að á Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd er ekki fiskvinnsla, ólíkt Sauðárkróki.
Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.
Þegar tillögur sveitarfélags hafa verið mótteknar í ráðuneytinu eru þær birtar á vef ráðuneytisins í sjö daga og óskað eftir athugasemdum við þær. Á því tímabili geta t.d. aðilar eins og bréfritarar sent inn sínar athugasemdir og röksemdir fyrir öðrum útfærslum. Í kjölfarið tekur ráðuneytið tillögur sveitarstjórnar til efnislegrar meðferðar en það er á endanum ráðherra að taka ákvörðun um hvort hann samþykkir að víkja frá eða samþykkir viðbótar skilyrði við almennar reglur um úthlutun byggðakvóta.
Þessu ferli er öllu lokið hvað varðar úthlutun almenns byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2024-2025 og því ekki á færi sveitarstjórnar Skagafjarðar að endurskoða úthlutunarreglur sem birtar hafa verið á vef atvinnuvegaráðuneytisins.

Í bréfinu er lögð fram samþykkt frá aðalfundi félagsins þann 11. september 2024, en þar segir:
"Aðalfundur Drangeyjar-smábátafélags Skagafjarðar leggur áherslu á að byggðakvóta í
Skagafirði verði einungis úthlutað til dagróðrabáta sem eru minni en 30 brt. Þá verði
aldrei meira en 20% af byggðakvóta á Sauðárkróki úthlutað til hvers útgerðarfyrirtækis.
Verði vinnsluskyldu í heimabyggð á mótframlagi byggðakvótans krafist, verði tryggt að
markaðsverð greiðist fyrir landaðan afla."