Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 130

Málsnúmer 2501020F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 35. fundur - 12.02.2025

Fundargerð 130. fundar byggðarráðs frá 22. janúar 2025 lögð fram til afgreiðslu á 35. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 130 Lagt fram bréf frá Rarik dagsett 20. desember 2024 um strenglögn frá Veðramótum að Breiðstöðum og frá Veðramótum norður að Ingveldarstöðum. Um er að ræða háspennustrengi og lágspennustrengi fyrir heimtaugar. Óskað er eftir afstöðu eða athugasemdum byggðarráðs við fyrirhugaða framkvæmd.

    Byggðarráð gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd og felur sveitarstjóra að undirrita samkomulag um fyrirhugaða framkvæmd.
    Bókun fundar Afgreiðsla 130. fundar byggðarráðs staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 130 Lagt fram bréf frá skipulagsfulltrúa Skagafjarðar dagsett 10. janúar 2025 um grenndarkynningu. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar og/eða athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd við Sjóvörn á Hofsósi. Um er að ræða 150 m nýja sjóvörn neðan við Suðurbraut en Vegagerðin hefur unnið að útfærslu sjóvarnargarðsins í samráði við sveitarfélagið.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umrædda framkvæmd.
    Bókun fundar Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundinum við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 130. fundar byggðarráðs staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 130 Málið var áður á dagskrá 117. fundar byggðarráðs þann 18. október sl.

    Hólf 23 við Hofsós var á síðasta ári boðið til sölu en ákveðið var að hafna öllum innkomnum kauptilboðum í hólfið. Málið hefur verið skoðað nánar og nú liggur fyrir verðmat Magnúsar Leópoldssonar fasteignasala hjá Fasteignamiðstöðinni ehf upp á 300.000 krónur á hektarann.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa hólf 23 við Hofsós til sölu.
    Bókun fundar Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundinum við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 130. fundar byggðarráðs staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 130 Fært í trúnaðarbók Bókun fundar Afgreiðsla 130. fundar byggðarráðs staðfest á 35. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2025 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 130 Máli vísað frá 29. fundi félagsmála- og tómstundanefndar frá 17. desember sl., þannig bókað:
    "Fyrir fundinum lágu reglur Skagafjarðar um hæfingu og dagþjónustu, reglurnar grundvallast á 24. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Reglurnar eru einnig háðar samþykki sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk. Aðildarsveitarafélögin hafa samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar samhljóða fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu byggðarráðs."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirlagðar reglur Skagafjarðar um dagþjónustu, hæfingu og aðstoð vegna fatlaðs fólks og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Reglur Skagafjarðar um hæfingu og dagþjónustu, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.