Ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga vegna bils milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla
Málsnúmer 2406208
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 104. fundur - 03.07.2024
Lagt fram bréf frá Jafnréttisstofu, dagsett 19. júní 2024, þar sem vakin er athygli á ábyrgð og hlutverki sveitarfélaga vegna bils á milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla.
Byggðarráð Skagafjarðar - 175. fundur - 17.12.2025
Lögð fram til kynningar skýrsla Jafnréttisstofu, Umönnunarbilið - kapphlaupið við klukkuna og krónunar. Helstu niðurstöður hvað varðar umönnunarbilið, þ.e. tímabilið á milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar barna, eru þær að þörf er á samræmdri þjónustu og traustri fjármögnun, leggja þarf áherslu á kyngreinda tölfræði og jafnréttismat, sveitarfélög þurfa að samþætta jafnréttissjónarmið í ákvarðanir og að umönnunarbilinu hefur enn ekki verið lokað með þeim afleiðingum að verkaskipting kynjanna inni á heimilum og á vinnumarkaði helst óbreytt.