Fara í efni

Norðurbrún 9B - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2403225

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 36. fundur - 12.04.2024

Atli Gunnar Arnórsson byggingarverkfræðingur sækir f.h. Skagafjarðarveitna um leyfi til að byggja við borholuhús VH-03 sem stendur á lóðinni númer 9b við Norðurbrún í Varmahlíð. Í viðbyggingunni verður komið fyrir spenni og öðrum búnaði vegna dælingar úr borholunni. Einnig sótt um leyfi til að endurbyggja og stækka gasskiljutank fyrir heitt vatn sem stendur við dæluhús VH-03 á lóðinni. Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 10170001, númer A-101, A-102 og S-101, dagsettir 27. og 28. nóvember 2023. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.