Fara í efni

Hvatning til sveitarfélaga að koma villtum fuglum til aðstoðar

Málsnúmer 2302150

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd - 12. fundur - 06.03.2023

Dýraverndarsamband Íslands hvetur sveitarfélög til að koma villtum fuglum til aðstoðar. Þessi vetur hefur reynst villtum fuglum sérlega erfiður, en frosthörkur hafa verið óvenjulega miklar og langvarandi. Fjöldi fugla hefur drepist vegna þess að þeir hafa ekki komist í fæðu og margir þeirra glíma nú við máttleysi sökum hungurs og kulda.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar ábendinguna og hvetur íbúa til að leggja sitt af mörkum.