Brautarholt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2209106
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 6. fundur - 26.09.2022
Atli Gunnar Arnórsson sækir f.h. Ólafs Bjarna Haraldssonar um leyfi til að byggja íbúðarhús í landi Brautarholts 1, L234442. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnar Arnórssyni byggingarverkfræðingi. Uppdrættir í verki 73905001, númer A-100, A-101, A-102 og A-103 dagsettir 24. júní 2022. Byggingaráform samþykkt.