Sauðárkrókur - Deiliskipulag - Norðurbær
Málsnúmer 2203236
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 423. fundur - 06.04.2022
Visað frá 430. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 29. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Skipulagsfulltrúi leggur fram tillögu að afmörkun á deiliskipulagssvæði í samræmi við bókun skipulags- og byggingarnefndar frá 18.11.2021.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið og leggur til við sveitarstjórn að hafin verði deiliskipulagsvinna á umræddu svæði."
Tillaga skipulags- og byggingarnefndar um að hafin verið skipulagsvinna á umræddu svæði, borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

Skipulagsnefnd - 6. fundur - 08.09.2022
Feðgarnir Björn Magnús Árnason og Árni Ragnarsson frá Stoð ehf. verkfræðistofu fara yfir þær hugmyndir og tillögur sem upp hafa komið í gegnum tíðina fyrir norðurbæinn/gamla bæinn á Sauðárkróki vegna deiliskipulagsvinnu sem hafin er á svæðinu.
Gestir
- Björn Magnús Árnason
- Árni Ragnarsson
Skipulagsnefnd - 7. fundur - 22.09.2022
Farið yfir tillögu að breyttri afmörkun deiliskipulagssvæðis fyrir norðurbæinn á Sauðárkróki. Skipulagsfulltrúa og hönnuði falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið og leggur til við sveitarstjórn að hafin verði deiliskipulagsvinna á umræddu svæði.